Boðað er til samstöðugöngu með Palestínu á Egilsstöðum í dag.
Samstöðufundur með Palestínu verður haldinn í dag á Egilsstöðum en safnast verður saman við Egilsstaðakirkju kl. 14:00. Þaðan verður svo gengið að Tehúsinu, þar sem haldinn verður samstöðufundur klukkan 14:30.
Dagskrá fundarins samanstendur af stuttum ræðum og tónlistaflutningi. Fundarstjóri verður Árni Friðriksson en ávarp fundarins flytur Sigurlaug Björnsdóttir Blöndal.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir