Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Þórhallur dæmdur fyrir grófa líkamsárás á fyrrverandi kærustu

Hlaut fjögurra mánaða skilorðs­bundinn fangelsisdóm

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt Þórhall Hjálmar Friðjónsson í fjögurra mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir grófa líkams­árás á fyrr­verandi kærustu sína á heimili hennar í Reykjavík sumarið 2023. Auk þess var honum gert að greiða konunni rúmlega 861 þúsund krónur í miska­bætur og sjúkra­kostnað.

Samkvæmt dómnum átti árásin sér stað að kvöldi 11. júlí og fram yfir miðnætti 12. júlí 2023. Þar segir að Þórhallur hafi tekið farsíma konunnar af henni, komið í veg fyrir að hún kæmist út úr íbúðinni og beitt hana ítrekuðu ofbeldi. Hann tók hana meðal annars ítrekað hálstaki, hélt fyrir vit hennar, togaði í hár hennar, kýldi hana í síðu og sló hana í andlitið. Þá reif hann hana úr nærbuxunum.

Konan hlaut fjölda áverka, þar á meðal rifbrot, marbletti, blóð­sprengingar í augum og á hálsi auk annarra áverka víðs vegar um líkamann. Hún leitaði til læknis daginn eftir árásina og síðar kom í ljós rifbrot sem staðfest var með tölvu­sneiðmynd. Læknar báru fyrir dómi að áverkar hennar væru í samræmi við frásögn hennar.

Þórhallur játaði frá upphafi þá háttsemi sem honum var gefin að sök og viðurkenndi meðal annars að hafa tekið konuna hálstaki, haldið henni niðri og bannað henni að fara út. Hann sagðist jafnframt telja mögulegt að rifbrotið hefði orðið þegar hann settist ofan á hana eða hélt henni fastri.

Saksóknari ákærði Þórhall fyrir brot í nánu sambandi. Héraðs­dómur taldi hins vegar ósannað að hann og brotaþoli hefðu verið í sambúð í skilningi laganna þrátt fyrir að hafa verið í nánu sambandi. Því var háttsemin ekki felld undir ákvæði um ofbeldi í nánu sambandi heldur undir almennt ákvæði hegningar­laga um stór­fellda líkams­árás. Dómurinn taldi þó að tengsl þeirra ykju alvarleika brotsins við ákvörðun refsingar.

Þórhallur var jafnframt ákærður fyrir að hafa brotist inn í síma og spjald­tölvu konunnar og skoðað samfélags­miðla hennar í heimildar­leysi. Dómurinn sýknaði hann af þeim ákærulið þar sem brotið var talið fyrnt þegar ákæra var gefin út.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að Þórhallur hafði ekki áður gerst sekur um refsivert brot, játaði brotin strax og sýndi iðrun. Refsingin var ákveðin fjögurra mánaða fangelsi en fullnustu hennar frestað til tveggja ára, að uppfylltu almennu skilorði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra