Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, var tekjuhæsti Íslendingurinn árið 2025 samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Þetta er annað árið í röð sem Árni trónir á toppi listans.
Samkvæmt útsvarsskyldum tekjum var Árni með ríflega 46 milljónir króna á mánuði að meðaltali á síðasta ári. Til samanburðar námu mánaðartekjur hans rúmlega 40 milljónum króna árið 2024.
Tveir aðrir einstaklingar í úttektinni voru með útsvarsskyldar tekjur yfir 30 milljónum króna á mánuði.
Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq Minerals, var næstur á listanum með 39,5 milljónir króna á mánuði. Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, fylgdi þar á eftir með 33,5 milljónir króna á mánuði.
Í umfjöllun Frjálsrar verslunar er sérstaklega tekið fram að tölurnar byggist á útsvarsskyldum tekjum einstaklinganna á árinu 2025. Þær þurfi því ekki að endurspegla föst laun þeirra eða reglulegar mánaðarlegar launagreiðslur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir