Anna Kristjánsdóttir rifjar upp hinn örlagaríka dag fyrir 28 árum er hún fór í kynleiðréttingu á Karólinska-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi.
Í nýjustu dagbókarfærslu Önnu, rifjar hún upp minningar sínar frá því að hún fór í kynleiðréttingu, en hún var önnur íslenska konan sem gekkst undir slíka leiðréttingu. Í færslunni telur Anna upp nokkrar fyrirmyndir sínar sem einnig fóru í kynleiðréttingu. Færsluna má lesa hér að neðan.
„Dagur 1350 – Minningar.
Mig langar til að ræða minningar. Ég vil þó taka fram að þegar þessi pistill birtist klukkan níu að morgni á ég engar minningar frá þeirri stundu fyrir 28 árum síðan sem betur fer. Á þeirri stundu var ég nefnilega á skurðarborðinu á Karólinska sjúkrahúsinu í Solna (Stokkhólmi) og var í aðgerð til leiðréttingar á kyni. Þegar ég vaknaði loksins á uppvakningunni einhverjum klukkustundum síðar, byrjaði ég á að athuga hvernig staðan væri á milli fóta mér. Þar reyndist allt vera eins og það átti að vera, fermingarbróðirinn farinn og ég fylltist einhverri sársaukablandinni sælutilfinningu. Það er nefnilega dálítið sárt líkamlega að fara í gegnum slíka aðgerð.Það sem ég gekk í gegnum þessa dagana var samt hátíð miðað við svipaðar aðgerðir á árum áður. Þannig lýsti April Ashley (1935-2021) sársaukafullum dögunum sem fylgdu eftir aðgerð hennar árið 1960 sem nánast óbærilegum og svipaða sögu sagði Caroline Cossey (f 1954). Aftur á móti talaði Ian Morris (1926-2020) ekkert um sársaukann í sjálfsævisögu sinni Conundrum, þegar hún fór í gegnum samkonar aðgerð árið 1974, um svipað leyti og Caroline Cossey svo nokkrar fyrirmyndir mínar séu nefndar, þó að ótalinni uppáhalds fyrirmyndinni minni Lili Elbe (1882-1931), en hún reyndi að ná fullkomnun í sínu ferli sem kostaði hana lífið í september 1931.Ég hafði fengið mænudeyfingu sem gerði það að verkum að sársaukinn var nánast enginn og ég þakka almættinu fyrir þá náð sem fylgir mænudeyfingu á slíkum stundum. Vissulega fylgdu ýmsar aukaverkanir, en þær voru smáatriði í samanburði við lýsingar annarra transkvenna áratugum á undan mér á líðan sinni fyrstu dagana eftir aðgerðina.Síðan þá eru liðin 28 ár.Ég hafði aldrei ætlað mér að auglýsa aðgerðarferli mitt út á við, en einhvernveginn atvikaðist það svo að ég varð þekkt í Svíþjóð sem formaður sænska transfélagsins Benjamin sem var á þeim tíma helsti málsvari transsexual fólks í Svíþjóð og síðan á Íslandi haustið 1994 með frægu viðtali í Nýju lífi.Þegar ég hugleiði málin eftirá, 28 árum síðar, horfist ég í augu við þá einföldu staðreynd að ég hefði aldrei getað dulist lengi í íslensku samfélagi með þögnina að vopni. Það þurfti einhver að koma í dagsljósið með tilfinningar sínar, en úr því að sú fyrsta íslenska sem fór í gegnum aðgerðarferli til leiðréttingar á kyni vildi ekki koma fram opinberlega þótt hún hafi aldrei neitað því, þá þurfti einhver sem kom á eftir að tjá sig. Það lenti bara óvart á mér að koma út opinberlega.Frá því 24. apríl 1995 á ég tvo afmælisdaga, fæðingardaginn 30. desember 1951 og daginn sem ég hóf nýtt líf fyrir alvöru, 24. apríl 1995.Ég held uppá þá báða afmælisdagana.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir