Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Frambjóðandi vill að Davíð verði handtekinn: „Er ekki kominn tími á að handtaka þann Íslending …“

Davíð Oddsson
Davíð Oddsson

„Það hljómar eins og lélegur brandari að 20 ára afmælis­degi ólögmætrar innrásar í Írak sé “fagnað” af Alþjóða Stríðsglæpa­dómstólnum með því að gefa út ákæru á hendur Pútin forseta Rússlands fyrir að flytja um sex þúsund munaðar­laus börn af stríðs­svæði.“ Svona byrjar aðsend grein frá Ástþóri Magnússyni sem birtist á Vísi í gær en greinin ber heitið Handtakið Davíð.

Ástþór Magn­ús­son

Ástþór Magnússon, marg­faldur forseta­fram­bjóðandi, skrifaði í gær pistil á Vísi í gær þar sem hann krefst þess að Davíð Oddsson verði hand­tekinn vegna brota í starfi forsætisráherra en eins og flestir muna setti Davíð Oddsson, sem forsætis­ráðherra Íslands, ásamt Halldóri Ásgríms­syni, þáverandi utan­ríkis­ráðherra, Ísland á „lista hinna viljugra þjóða“ til stuðnings við innrásar­stríð Banda­ríkjanna á Írak 2003. Ástþór á það sameiginlegt með Davíð að báðir hafa þeir boðið sig fram til forseta en Davíð náði þó ívið betri árangri er hann bauð sig fram, þó hann hafi einungis fengið 13,7 prósent atkvæða gegn Guðna Th. Jóhanns­syni, Andra Snæ Magnússyni og Höllu Tómasdóttur árið 2016.

Í pistlinum byrjar Ástþór á að skjóta föstum skotum á Alþjóða­glæpa­dómstólinn fyrir „tvískinn­ungs­hátt“. Þá kemur hann inn á þátt Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgríms­sonar í Íraks­stríðinu en þeir studdu það.

„Með hátterni sínu og tvískinn­ungs­hætti s.l. tuttugu ár hefur þessi spillti dómstóll grafið undan réttar­ríkinu. Látið NATO nota sig til að rétta aðallega yfir afrískum leiðtogum á meðan stærstu glæpamenn mannkyns­sögunnar eru frið­helgir.

Glæpir Pútins fölna saman­borið við stríðs­glæpi George W. Bush og hans fylgis­sveina, m.a. Íslendingana Davíðs Oddsonar og Halldórs Ásgríms­sonar sem studdu ólögmæta árás á Írak sem varð 1.2 milljónum að bana, þ.á.m. konur og börn sem voru myrt eða svelt í hel með beinum stríðs­aðgerðum og efnahags­þvingunum. Milljónir sendir á flótta frá heimilum sínum, innrásar­herinn þeirra stundaði pyntingar á föngum, opnaði fyrir straum hryðju­verkamanna inn í landið og skildi síðan Írösku þjóðina eftir í algjörri upplausn og berskjaldaða fyrir hryðju­verkum. Halldór er farin á vit feðra sinna og vonandi hefur fengið sína refsingu þar. Davíð, Bush og þeirra fylgisveinar leika enn lausum hala eins og ekkert hafi í skorist.“

Seinna í pistlinum segir Ástþór að þeir Davíð og Halldór hafi lýst yfir stuðningi við hernaðar­brölt Banda­ríkjanna og að þeir hafi boðið íslenskar farþegarflugvélar til hergagna­flutninga.

„Í undir­búningi innrásarinnar á NATO fundi í Prague árið 2002 lýstu forsætis­ráðherra Davíð Oddsson og utan­ríkis­ráðherra Halldór Ásgrímsson yfir stuðningi Íslands við bandarískan hernað og innrás í Mið-Austur­löndum og buðu fram Íslenskar farþega­flugvélar frá Atlanta og Icelandair til hergagna­flutninga. Gögn frá utan­ríkis­ráðuneytinu sanna að á þessum tíma­punkti höfðu þessir sömu menn vitneskju um að þarna var verið að fremja víðtæk fjölda­morð og þjóðernis­hreinsanir undir lygavef frá bandarísku leyni­þjónustunni.“

Þá segir Ástþór frá því að hann hafi sent viðvörun til „allra starf­stöðva Atlanta og Icelandair á Íslandi og erlendis, allra Íslenskra lögreglu­stöðva, ráðuneyta, alþingis­manna og afrit til fjölmiðla.“

„Í meðferð málsins lagði ég fram skjöl til stuðnings þeirri staðreynd að með þátttöku í herflutningum breytist skilgreining flug­félaganna úr því að vera borgarlegt skotmarki yfir í hernaðarleg. Samkvæmt Geneva sátt­málanum um stríðs­rekstur yrðu flug­félögin þannig orðin lögmæt skotmörk þeirra sem stríðið beinist að,“ skrifaði Ástþór en hann var hand­tekinn og fangelsaður aðeins nokkrum klukku­stundum síðar að því er fram kemur í greininni. Bætti hann svo við að handtaka beri Davíð Oddsson: „Síðar var mér sagt af starfs­manni innan stjórn­sýslunnar að skipun um mína handtöku hafi komið til Ríkis­lögreglu­stjóra úr forsætis­ráðuneytinu. Er ekki kominn tími á að handtaka þann Íslending sem misnotaði embætti sitt sem forsætis­ráðherra til að veita stuðnings Íslands við ólögmæta árás á fjarlæga þjóð og kóróna það svo með að gefa út skipun um að handtaka friðar­sinna fyrir að benda á hvað stæði í alþjóða­lögum um fyrir­hugað athæfi ráðherrans.“

Aðsendu grein Ástþórs má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim