Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Arnar Eggert: „Stúlkur skila inn afburðaefni og finnst það lélegt – Þetta þarf að breytast“

Arnar Eggert Thoroddsen.
Arnar Eggert Thorodd­sen.

Tónlistar­doktorinn Arnar Eggert Thoroddsen ritar afar áhuga­verða grein á Stundinni og hefst hún svona:

„Ég var rétt í þessu að skrifa um jóla­dagatal Akra­nesbæjar, Skaginn syngur inn jólin, sem er í formi tónlistar­innslaga sem birt eru á Snjáldru (Facebook) jafnt sem í þjón­varpinu (Youtube) þá daga sem leiða upp að jólum. Þetta er heiðarleg og einlæg starfsemi, keyrð áfram af ástríðu og áhuga, og ber með sér notalega samfélags­tilfinningu þar sem þeir sem tilheyra einhverjum kjarna leggjast á eitt um að skapa eitthvað sem stendur utan við hópinn og er stærra en þeir.“

Bætir við:

„Á vissan hátt er þetta kjarni tónlistarinnar, hún er meira en við sem búum hana til eða stuðlum að henni, öðlast eigið líf sem svo blæs okkur anda í brjóst. Mig langar til að nota þetta formlega færi sem ég hef til að setja niður hugleiðingar um tónlist, hvernig hún hefur hitt á mig á liðnu ári, hvaða merkingu hún hefur fyrir mig og, já, líka ykkur.“

Arnar Eggert segir að „ég þarf svosem ekki að fara í saumana á því hvaða merkingu hún hefur fyrir mig persónu­lega. Hún er köllun mín í lífinu, er mér allt. Ég er svo ótrúlega lánsamur að ég hef lifibrauð af því að sinna henni í gegnum hin ýmsu tæki og tól, veri það í leiðsögn, skrifum, kennslu, nefndar­störfum eða útvarps­mennsku. Þetta tiltæki Skaga­manna fékk mig til að hugsa um það hversu útbreidd hún er og hversu mikið við sækjum í hana. Í útvarpinu, í tónleika­sölum, inni í herbergjum, í sjón­varpinu, í sturtunni – tónlistin er alls staðar. Hún hefur gríðarlegt samfélagslegt gildi og kannski af því að þetta er svo sjálfsagt mál í okkar huga eigum við til að gleyma því að hún verður ekki til úr engu.“

Heldur áfram:

„Það þarf stuðning, athygli, tækifæri, fjármagn og fleira til að halda þessu smurðu og gangandi. Og þess vegna ætla ég að skipta núna í menningar­pólitískt tal því að annað er óhjákvæmilegt. Allt er pólitík.

Og það verður aldrei of oft hnykkt á öllum þeim mikilvægu þáttum sem verða að vera til staðar eigi heilbrigt tónlistarlíf að þróast. Það hefur til dæmis glatt mig mikið að fá að upplifa aukna fram­leiðslu og aukinn sýnileika kvenna í tónlist að undan­förnu.“

Arnar Eggert nefnir dæmi:

„Þrjár sterkar, ungar konur voru til dæmis áberandi á nýafstaðinni Kraums­verðlauna­hátíð, þær KUSK, Una Torfa og gugusar. Fleiri plötur eru að koma út, almennt séð, úr kvennaranni, oft stuttar plötur sem hlaðið er í inni í svefn­herbergi og þeim svo dúndrað út á streymis­veitur. Fleiri konur eru að taka þátt í Músík­tilraunum. KÍTON, konur í tónlist, láta í sér heyra. Stelpur rokka eru til, styðja við og mynda vettvang og pláss. Starfsemi, virkni og gjörðir eru lykill hérna. Við hugsum okkur ekki út úr ójafnrétti, nei, það þarf beinar aðgerðir,“ segir hann og bætir við:

„Mér finnst þetta svo augljóst en ég veit að ekki eru allir á sama máli. Til að skakka leikinn þarf að ákveða að hafa tónlistar­dómnefndir sirkabát til helminga, karla og konur. Fimm konur og fimm karla. Fjóra karla og sex konur, allt í lagi. Sex karla og fjórar konur. Veit ekki en samt, það sleppur. Að stilla þessu svona upp stuðlar smám saman að breytingum til góða. Raddir kvenna – sem heyrast ekki nægilega vel, aldrei – koma inn. Og það er mikilvægt.“

Hann nefnir að „það er mun skemmtilegra að vera í dómnefndum í dag en fyrir tíu árum. Að þú eigir minna færi á því að láta í þér heyra, vegna kyns, er óþolandi. En ef við myndum sleppa svona kvóta­hugsun? Hvernig væru dómnefndir þá skipaðar? Ég er ansi hræddur um að meirihluti þeirra væru annaðhvort eingöngu skipaðar körlum eða þá að ein, tvær konur myndu slæðast inn. Og væru svo kaffærðar af körlunum. Pláss, athygli, vettvangur. Platform á ensku. Sýni­leikinn er svo mikil­vægur auk þess sjálfsagða réttar að vera ekki fullkomin. Að koma afurðinni út, eins vel og færni og tímamörk leyfa, er algert aðal­atriði.“

Arnar Eggert segir að lokum að „menning er nefnilega ekki að vanda sig. Menning er að gera, skapa og búa til. Eitthvað. Og það má vera gott, hálfgott eða lélegt. Íslensk tónlistar­framtíð er björt og ég vil meira. Meira, meira. Frá konum og körlum og megi það vera snilld sem ömurð. Málið er nefnilega aldrei hvað þú getur, heldur hvað þú gerir. Í starfi mínu sem háskóla­kennari skila strákar inn drasli og finnst þeir eiga Nóbels­verðlaun skilið. Stúlkur skila inn afburða­efni og finnst það lélegt. Þetta þarf að breytast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Meðal þeirra sem þar hafa búið eru Cher, Elton John, Lindsay Lohan og Courteney Cox.
Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri