Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Sölvi varð fyrir áfalli í Kólumbíu: „Á einum degi hrynur því plan mitt um fyrsta skrefið til baka“

Sölvi Tryggvason gefur út bókina Skuggi – Saga falls, útskúfunar, upprisu og uppgjörs, hjá bóka­útgáfunni Sögur útgáfa, um miðjan dag í dag. 

Bókin fjallar um ósannar sögu­sagnir sem fóru á kreik um að Sölvi hefði brotið á þremur konum og þann gríðar­lega hvirfilbyl sem skapaðist í kjölfar málsins.

Mannlíf birtir nú brot úr bókinni:

„Slaufað í annað sinn

27. desember 2021 – Medellín, Kólumbíu

Ég sit á kaffihúsi í Laureles-hverfinu í Medellín að morgni dags 30. desember þegar ég átta mig á því að leiðin til baka verði lengri og erfiðari en ég hef haldið. Það hefur borist til fjölmiðla að hlað­varpið mitt sé að fara af stað aftur og kvisast út hvaða viðtöl ég sé að fara að setja í loftið. Fjöl­miðlar hafa sett sig í samband við viðkomandi aðila og ekki líður á löngu þar til viðmælendurnir biðja um það einn af öðrum að viðtölin við þá fari ekki í loftið. Fyrst Bogi Ágústsson og svo Krummi í Mínus og Hermann Hreiðarsson knattspyrnu­goðsögn.

Á einum degi hrynur því plan mitt um fyrsta skrefið til baka eins og spilaborg. Það er verulega sárt að fá þessar beiðnir hverja á fætur annarri, enda eru öll þessi viðtöl mjög góð og ég veit að allir höfðu viðmælendurnir labbað úr viðtölunum vitandi að þau væru mjög vel heppnuð. Bogi var mjög sáttur og Krummi hafði beinlínis sagt við mig að það hefði verið eins og þerapía að sitja í viðtalinu hjá mér. Hermann Hreiðars sagði að sér hefði fundið viðtalið frábært og ég er sama sinnis. Hermann hringir í mig og gefur mér útskýringar. Ég er á hótel­herberginu mínu í Medellín þegar hann hringir í gegnum Facebook messenger. Hann er allur hinn almennilegasti en ég veit strax að erindið er það að hann vill ekki að viðtalið okkar fari í loftið. Hann útskýrir fyrir mér að það sé búið að þrýsta á hann úr fleiri en einni átt og að knattspyrnu­hreyfingin sé öll logandi hrædd eftir allt fárið í kringum KSÍ. Þó að ég sé ekki alveg sáttur skil ég hvaðan hann er að koma og að endingu verðum við ásáttir um að geyma viðtalið og birta það mögulega síðar.

Þegar þarna var komið sögu sárnaði mér þetta mjög og fannst þremenningarnir vera að taka afstöðu gegn mér. Ég hafði ekki reiknað með þessum viðbrögðum og tauga­kerfið fór á ákveðinn hátt sex mánuði aftur í tímann í endur­upplifun á slaufuninni um vorið. Samkvæmt umfjöllun fjölmiðla átti ég að hafa verið í gæslu­varðhaldi dagana sem ég tók viðtölin við Boga, Krumma og Hermann, sem augljós­lega ætti að nægja til að staðfesta að hlutirnir væru talsvert öðruvísi en haldið hafði verið fram.

En nú þegar rykið er sest sé ég þessa atburðarás með öðrum augum. Miðað við stöðuna í þjóð­félaginu á þessum tíma var það mikil einföldun af mér að halda að ég gæti bara sett þessa þætti í loftið og enginn segði neitt. Eftir á að hyggja er augljóst að viðmælendurnir yrðu settir í þá stöðu að verða einhvers konar andlit fyrir endurkomu mína og að reiðasti hópurinn myndi setja á þá pressu. Auðvitað var þá einfaldasta ákvörðunin að bakka bara út. Eins og með svo margt í þessu ferli tók það mig tíma að setja mig í spor fólks sem ég var sár út í. Eftir að hafa gert það skil ég að það var aldrei neinn persónu­legur illvilji að verki eða löngun til að klekkja á mér eða taka afstöðu gegn mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027