Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Gunnari Smára hótað: „Ekki bara belgingur eins og hótanir eru oftast – Viva Bjarni Ben!“

Gunnar Smári Egilsson, meðlimur í Sósíalistaflokki Íslands.
Gunnar Smári Egilsson, með­limur í Sós­í­alista­flokki Íslands.

„Þið eruð siðblind helvíti og farið beint þangað. Ég mun finna á endanum hvar þið eigið heima. Hugsaðu um fjöl­skylduna þína áður en þið haldið áfram. Ég vill ekki beita vopnum en þið gefið mér ekki færi á öðru.“ Þessu greinir Gunnar Smári Egilsson, meðlimur Sósíalista­flokks Íslands frá  á Facebook-síðu Sósíalista­flokksins, en hann fékk þessi skilaboð send fyrri tveimur dögum síðan.

Gunnar Smári segir að hann hafi tilkynnt viðkomandi að þessar hótanir yrðu tilkynntar lögreglu, sem hann svo gerði. Þegar lögregla heyrði í Gunnari hafi hann sömuleiðis tilkynnt hótanir sem hann hefur fengið frá öðrum manni sem einnig hefur veist að Gunnari út á götu ásamt fjöl­skyldu hans.

„Ég sá hann síðast fyrir utan heimili mitt þar sem hélt hótunum sínum áfram, hrópaði alls kyns ókvæðisorð um meinta glæpi sósíalismans, sagði mér að láta Bjarna Benediktsson í friði og hrópaði að lokum: Viva Bjarni Ben!“

Gunnar segist hafa bent lögreglu­manni á að deild lögreglu sem rannsakar haturs­orðræðu ætti að kanna hvernig áhrifa­fólk í samfélaginu talar um sósíalisma, en sumir tali um sósíalisma og leggi þar að jöfnu sósíalíska verkalýðs­baráttu Sósíalista­flokksins við morð og ofbeldis­verk alræðis­stjórna, kennda við sósíalisma, á síðustu öld.

„Að þau sem vildu há róttæka verkalýðs­baráttu á Íslandi í dag væru í raun að leggja af stað í leiðangur sem hlyti að enda í afnámi lýðréttinda, morðum á pólitískum andstæðingum, jafnvel hungurs­neyðum sem myndu fella tugi milljóna manna. Undir slíkum haturs­ræðum gegn frelsis­baráttu hinna fátæku og valda­lausu fengju vanstilltir menn þær grillur í hausinn að sjálfsagt væri að hóta og jafnvel meiða forystu­fólk í Sósíalista­flokknum og í verkalýðs­hreyfingunni.

Ég stakk upp á að lögreglan gæti t.d. haldið erindi í stjórn­málaskóla Sjálfstæðis­flokksins, þar sem það hefur verið kennt lengi að sá sem aðhyllist hugsjónir sósíalismans myndi á endanum leiðast út í samskonar alræði og einræðis­herrar sovéska og kínverska kommúnista­flokksins.“

Ráðist á húsnæði sósíalista

Síðan í gær hafi óprúttinn aðili eða aðilar grýtt félags­miðstöð Vorstjörnunnar þar sem Sósíalista­flokkurinn leigir aðstöðu ásamt öðrum samtökum.

„Tveir gluggar voru brotnir þar sem merki flokksins og Samstöðvarinnar eru.

Auðvitað veit ég ekki hvort annar mannanna sem ég benti lögreglunni á hafi verið að verki. En auðvitað grunar mig það. Ég hef verið blaða­maður frá því fyrir næstum fjörutíu árum og oft verið hótað. Menn hafa ruðst inn á ritstjórnir blaða sem ég hef unnið á og gert sig breiða, ætt inn á skrif­stofu mína, lokað á eftir sér og hótað líkams­meiðingum. Ég hef fengið hótanir í pósti, símtölum, tölvu­pósti og sms. Mér datt aldrei í hug að tilkynna þessar hótanir og hef aldrei sagt frá þeim opinber­lega.

Ekki fyrr en núna í vikunni. Heiftin í þessum mönnum og talsmáti, og fullvissa þeirra um að sósíal­istar sé skepnur og svívirðingar, veldur því að ég óttast að þetta sé ekki bara belgingur, eins og hótanir eru oftast.“

Sambærileg orðræða viðhöfð gagnvart Sólveigu

Gunnar minnir eins á átökin sem hafi átt sér stað í kringum Eflingu nýverið. Þá hafi sambærileg orðræða verið viðhöfð og Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, kölluð Stalínisti, sögð halda dauða­lista, þola ekki gagnrýni sem og annað sem hafi átt að skapa hugrenninga­tengsl milli Sólveigar og alræðis­stjórna Sovét­ríkjanna.

„Og þegar Pútín sendi rússneska herinn inn í Úkraínu stigu menn á stökk, sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum eru taldir máls­metandi, til að lýsa yfir ábyrgð íslenska sósíal­ista á þessari innrás. Jafnvel þótt Sjálfstæðis­flokkurinn hafi verið í pólitísku samstarfi við Sameinað Rússland fram að innrásinni á Krím og Pútín er álíka langt frá því að vera Sósíal­isti og Bolsonaro, Trump eða Erdogan, svo einhverjir af öðrum pólitískum samherjum Sjálfstæðis­flokksins séu nefndir.“

Gunnar Smári telur að sósíal­istar hér á landi þurfi að taka orðræðuna alvarlega sem nú vaði upp hér á landi. Algengt sé að sósíal­istar séu sakaðir um að vilja alræðis­stjórn.

„Þótt þetta sé banal orðræða þá virkar hún á fólk sem er einmitt banalt fyrir og það sér sósíal­ista sem stór­hættulegt fólk sem verður að stoppa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólks landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum