Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Peningar

Lands­liðs­konur í ný störf

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Fólk

Glæsi­hýsi til sölu þar sem sláttu­vélin þarf að kom­ast upp á þak

Albert Guðmundsson káfaði ítrekað á Guðrúnu í borgarstjórn: „Ég hélt nánast um punginn á honum“

„Upp frá því byrj­aði hann á þessu and­skot­ans káfi, fór að stunda það að koma aftan að mér og grípa um brjóstin. Ég hélt ég myndi hníga niður af nið­ur­læg­ingu og skömm,“ segir Guðrún Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Kvenna­list­ans, um áreiti sem hún seg­ist hafa þurft að þola frá Alberti Guð­munds­syni, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Frásögn Guðrúnar er í ævi­sögu hennar, Ég verð aldrei ung­frú með­færi­leg, sem Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir skrifar. Áreitið átti sér stað í borg­ar­stjórn Reykja­víkur.

Albert Guð­munds­son.

Guðrún seg­ist upp­haf­lega hafa viljað trúa því að káf Alberts væri óvart en ekki hreinn og beinn brota­vilji.

„Margoft bað ég hann um að hætta. Ákveðið og ítrekað. En hann sætti færi, gekk á eftir mér og sett­ist við hlið mér í mat­salnum, gríp­andi í lærin, rass­inn eða brjóstin. Ég reyndi að færa mig undan og oft vék ég úr röð­inni vegna hans, en hann kom á eftir mér. Þetta var svo þrúg­andi. Hann reyndi heldur ekki að fara leynt með þetta, hátta­lag hans gaf jafn­vel til kynna að það væri eitt­hvað á milli okkar, sem mér fannst ömur­legt,“ segir Guðrún.

Saga Guðrúnar Jóns­dóttur er komin á bók.

Guðrún sagði Alberti að hún myndi ekki láta þetta við­gang­ast. Albert hafði veitt Guðrúnu dýr­mæta leið­sögn í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins en sá bögg­ull fylgdi skamm­rifi að upp frá því taldi hann sig eiga til­kall til hennar. Albert átti hún til að kalla „Berta skerta“ til að fá útrás fyrir gremjuna

„En hann var svo marg­slung­inn náungi. Út á við var hann í hlut­verki ríka karls­ins sem bjarg­aði fátæk­lingum frá hörm­ungum lífs­ins. Hann hafði aðgengi að pen­ingum og stakk 100 eða 500 krónum að fátækum hér og þar,“ segir Guðrún.

Hún ræddi málið við sam­starfs­konu sína, Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur sem sagð­ist aldrei hafa tekið eftir neinu.

„Ég skil það ekki enn, því við gengum nú yfir­leitt sam­hliða og fórum á sama tíma
í mat. Eins hafði ég rætt þetta opin­skátt við bak­hóp Kvenna­fram­boðs­ins, borg­ar­stjórn­ar­hóp­inn sem hitt­ist reglu­lega á Hótel Vík. Næsta skref hefði
verið að kvarta við borg­ar­stjóra, ef hann hefði verið venju­legur maður. En
það síð­asta sem mér datt í hug var að leita verndar hjá Davíð. Það hefði
verið eins og að fara úr ösk­unni í eld­inn …,“ sagði Guðrún.

Ástandið var óbæri­legt. Guðrún fann að hún var komin út á ystu nöf og varð að grípa til
aðgerða. Hún lét til skarar skríða.

„Ef þú hættir þessu ekki, Albert …“

„Ég vissi að ég yrði að gera eitt­hvað til að stoppa karl­inn. Einn dag­inn vorum við á leið­inni upp í mat­sal­inn á Skúla­götu. Karlinn gekk á eftir mér og káf­aði enn sem oftar. Settist síðan við hlið­ina á mér við mat­ar­borðið og sat þar með sín feitu læri. Ég ákvað að láta til skarar
skríða. „Ef þú hættir þessu ekki, Albert …“ byrj­aði ég. Hann þótt­ist ekk­ert vita
hvað ég væri að fara: „Hvað er þetta, Guðrún,“ sagði hann og lét sem hann
væri hissa. Ég lét ekki slá mig út af lag­inu og hélt áfram: „Þá skal ég gera
svona við þig,“ sagði ég og greip efst í lærið á honum og kleip eins fast og
ég gat. Það var fyrst þá, þar sem ég hélt nán­ast um pung­inn á honum,
sem hann gaf sig. „Nú hættir þú þessu káfi,“ sagði ég ákveðið og loks­ins
lét hann af þessu …,“ segir Guðrún í bók­inni, Aldrei verð ég Ungfrú með­færi­leg.

Hún afsakar aðferð­ina við að losna undan karl­inum.

„Ég not­aði sömu aðferð og hann hafði notað gegn mér. Mér var það þvert um geð. Ég hafði enga lyst á að klípa hann en ég vissi ekki hvernig ég gæti stoppað hann af öðru­vísi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

„Ég veit ekki hversu stórmannlegt það er hjá formanni Sjálfstæðisflokksins að narra til sín veikgeðja þingmann frá Viðreisn, sem ekki mun eiga sér viðreisnar von í Sjálfstæðisflokknum.“
Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Minning

„Guðjón var með ótrú­lega áru og per­sónu­töfra“

Innlent

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Málin verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í desember.
Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr