Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Stefán gerir stólpagrín að nýju léni Hafrannsóknarstofnunar: „Slökkviliðið yrði þá Logi og eldur“

Stefán Pálsson sagnfræðingur.
Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur.

Stefán Pálsson gerir stólpa­grín að nýju nafni Haf­rann­sókn­ar­stofnun.

Haf­rann­sókn­ar­stofn­unin breytti lén­inu sínu á dög­unum í hafog­vatn.is og þar á undan sam­ein­að­ist Land­græðslan og Skóg­ræktin undir nafn­inu Land og skógur. Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann gerir stólpa­grín að þess­ari „tísku“.

„Fyrst þegar ég heyrði nýja nafn Hafró, „Haf og vatn“ gant­að­ist ég með að „Síld og fiskur“ hefði verið upp­tekið. Eftir því sem frá líður er ég samt far­inn að taka þessa nýju til­raun (eða á maður að tala um tísku) í sátt. Ég er amk feg­inn að við séum ekki komin með enn eina helv*** „stof­una“ eða setrið.

Ættum við að taka þetta lengra og á fleiri sviðum? Slökkvi­liðið yrði þá Logi og eldur. Ráðu­neytið hennar Áslauga Örnu sem eng­inn man hvað heitir yrði Vit og strit. Fleiri góðar upp­á­stungur?“

Fólk tók vel í færsl­una og hafa nú þegar komið nokkrar góðar til­lögur að nýjum nöfnum fyrir stofn­unum rík­is­ins.

Hallur nokkur stingur upp á nýju nafni fyrir Útlend­inga­stofnun: „Útlend­inga­stofnun: Inn og út.“

Héðinn stingur upp á nýju nafni fyrir Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu: „Bjarni Ben gæti farið fyrir ráðu­neyt­inu: Stríð og friður.“

Sævar stingur upp á nýju nafni á Ikea, sem þó er ekki rík­is­stofnun, ekki enn að minnsta kosti. „Ég hef lengi gælt við þá sjálf­sögðu breyt­ingu að Ikea taki upp nafnið Kjöt­bollur og hús­gögn.“

Illugi Jök­uls­son gant­ast með: „Þú veist nátt­úr­lega að ráðu­neyti Svan­dísar heitir Kjöt og fiskur?“

Björn Leví Gunn­ars­son skaut fast á Katrínu Jak­obs­dóttur: „For­sæt­is­ráðu­neytið væri „hitt og þetta.“ Lengra nafn væri „hitt og þetta, samt ekk­ert þegar allt kemur til alls.“

Þorlaug nokkur betrumbætir til­lögu Píratans: „Hitt og þetta – ekk­ert að frétta.“

Jón Árni kemur svo með leið­rétt­ingu: „Hafró heitir enn Haf­rann­sókn­ar­stofnun. Svo var bara bætt við Rann­sókna- og ráð­gjafa­stofnun hafs og vatna. Og skipt um lén. hafog­vatn.is.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027