Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Brynjar ætlar ekki að bjóða sig fram: „Ég er of truntulegur til að gegna svona embætti“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson ætlar ekki að bjóða sig fram til for­seta Íslands.

Háð­fugl­inn og vara­þing­mað­ur­inn Brynjar Níelsson seg­ist hafa fengið áskorun í beinni útsend­ingu á Bylgj­unni um að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. „Gamall kollegi og félagi gerði mér þann óleik í beinni útsend­ingu á Bylgj­unni að skora á mig í fram­boð til for­seta Íslands. Áhrifa­máttur fjöl­miðla er mik­ill og nú hell­ast yfir mig áskor­anir. Af því að það hentar mér illa að liggja undir feldi dögum saman þá ætla ég ekki að bíða með til­kynn­ingu. Hún er sú að ég ætla ekki í fram­boð til for­seta Íslands.“

Brynjar til­tekur svo helstu ástæð­urnar fyrir ákvörðun sinni:

„Ástæður eru þessar helstar:

Ég er alþýðu­strákur úr Hlíðunum, sem breytt­ist í götu­strák eftir að ég byrj­aði í stjórn­málum. Allt snobb, sér­stak­lega menn­ing­ar­snobb á illa við mig, sem og hvers kyns tildur. Ég er í grunn­inn manna­fæla og líður best í felum bak við lykla­borð. Ég hef fallið í öllum kúrsum í fág­un­ar­skóla Soffíu og skortir allar fín­essur, sér­stak­lega þegar kemur að fram­komu og klæða­burði. Ég er of truntu­legur til að gegna svona emb­ætti.Póli­tískir and­stæð­ingar mínir, oft nefnt góða fólkið, hefur haldið því fram að mig skorti alla sam­kennd og mannúð og mann­gæska sé mér fram­andi. Ég vil nú mót­mæla því og full­yrði að þeir sem þekkja mig taki undir þau mót­mæli. En meg­in­á­stæðan fyrir þvi að ég ætla ekki í fram­boð er sú að ég vil halda hjóna­band­inu gang­andi eitt­hvað lengur.“

Þá segir hann að eig­in­kona hans væri betri kostur í emb­ættið en hann.

„Það væri miklu nær að menn skor­uðu á Soffíu í fram­boð. Hún hefur allt að bera sem prýtt gæti einn for­seta. Hún hefur aldrei gert neitt af sér í líf­inu, ekki einu sinni farið yfir á rauðu göngu­ljósi. Hún er vel að sér um hlut­verk og skyldur for­seta. Hún er með diplómu úr öllum bestu fág­un­ar­skólum heims. Að auki er hún afskap­lega hlý­leg og elsku­leg og hvers manns hug­ljúfi. Ég vil samt ekki sjá svip­inn á henni þegar hún kemst að þess­ari færslu.“

Að lokum seg­ist Brynjar ekki vilja lýsa yfir stuðn­ingi við ákveð­inn fram­bjóð­anda.

„Ég ætla ekki að lýsa yfir stuðn­ingi við ákveð­inn fram­bjóð­anda, það yrði bjarn­ar­greiði. Ætla samt að vona að þessar kosn­ingar verði ekki eins og hver önnur Júró­visjón­kosn­ing þar sem umbúð­irnar skipta meira máli en inni­haldið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakjör 2024

InnlentForsetakjör 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakjör 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

„Seðlabankinn er kominn í öngstræti“
Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027