Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Bróðir Brynjars Níelssonar reifst við Pírata á Facebook: „Þú ert viðurstyggilegt gerpi og aumingi“

Gústaf Níelsson
Gústaf Níelsson

Halldór Auðar Svansson, fyrrum borgar­fulltrúi og nú vara­þingmaður Pírata deildi á Facebook í dag frétt Vísis þar sem sagt er frá mismun­andi viðbrögðum Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra og Brynjars Níels­sonar, aðstoða­manns dómsmála­ráðherra, við árásir á húsnæði Sósíalista­flokksins. Hneykslast Halldór á viðbrögðum Brynjars sem talar um hræsni í viðbrögðum Gunnars Smára við árásunum.

„Gunnar Smári og Sósíal­istar hafa ekkert alltaf sparað gagnrýni á Dag og Samfylkinguna (enda væri þetta fólk væntanlega bara í Samfylkingunni ef því hugnaðist sá flokkur) en Dagur lætur það auðvitað ekkert þvælast fyrir því að fordæma ofbeldis­hótanir. Þær eru bara hreinlega í annarri og verri deild en umræða, hversu harkaleg sem hún kann að vera. Það á ekki að vera flókið að leggja ágreining til hliðar þegar svona kemur upp á og leggja áherslu á að þarna sé fólk komið yfir strikið – en er samt greini­lega of flókið fyrir aðstoðar­mann innan­ríkis­ráðherra. Í hans heimi er þetta bara sjálf­sagður hlutur sem fylgir bransanum, óþarfi að vera eitthvað að kvarta yfir þessu. Gunnar Smári kallaði þetta víst líka bara yfir sjálfan sig með sinni orðræðu.“

Rifrildi kviknuðu þegar bróðir Brynjars, Gústaf Níelsson skrifaði litla en leiðinlega athugasemd við færslu Halldórs: „Þau slá ótt og títt héra­hjörtun.“

Orri nokkur svaraði og var síður kurteisari en Gústaf. „Þú ert viðurstyggilegt gerpi og aumingi.“

Gústaf svaraði að bragði: „Takk, þekkjumst við eitthvað?“

Halldór Auðar svaraði þá Gústaf: „Æi slepptu bara þessum aumu ásökunum um hugleysi. Eini tilgangur þeirra er að forðast umræðu­efnið, ofbeldis­hótanir, með því að væna þann sem talar um það sem vandamál um aumingja­skap fyrir að kippa sér upp við það. Færa sumsé fókusinn á þann sem hefur orð á vanda­málinu. Ofbeldi er ekki fordæmt vegna þess að viðkomandi er hræddur við það, það er fordæmt af því það eyði­leggur samfélög að ofbeldi fái að þrífast án þess að því sé andmælt.“

Unnar nokkur stígur þá inn í rifrildið og skýtur fast á Gústaf og bróður hans: „Stundum hugsa ég til þess hvers Níelsar þessara heims þurfa að gjalda, og af hverju þið bræður hatið orðstír föðurs ykkar svona.“

Gústaf byrjaði á að svara Halldóri: „Þú þarft ekki að vera með þessa tilgerð. Sumt fólk kann því ágætlega að baða sig í ljósi fjöl­miðlanna. Gunnar Smári og Dagur eru af þeirri gerðinni. Löggan á að leysa úr svona máli, sé það gerlegt, en ekki fjöl­miðlar.“

Að lokum svaraði hann Unnari: „Það er gleðilegt að þú skulir hugsa eitthvað, en mér sýnist það vera þér ofraun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólks landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum