Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Sigurbirni krossbrá í sturtunni eftir að honum var bjargað: „Typpið var nánast horfið“

Sigur­björn Þórmundsson, háseti á togaranum Snorra Sturlu­syni RE, lenti í lífsháska þegar hann féll í ískalt hafið í Smugunni á milli Íslands og Noregs. Krafta­verk og samstillt átak félaga hans varð honum til lífs. 

„Það var rosalegt sjokk að lenda allt í einu í köldum sjónum. Ég fór á bólakaf en náði að komast upp á yfir­borðið. Þá voru félagar mínir búnir að kasta til mín björgunar­hring og ég náði að skríða upp á hann,“ sagði Sigur­björn í viðtali við DV um miðjan september árið 1996.

Óhappið varð um tíuleytið að kvöldi fimmtudagsins 5. september. Sigur­björn lýsti því að veður hafi verið fremur gott en sjórinn í úthafinu var ískaldur, aðeins um 3 gráður á Celsíus. Sigur­björn var um fjórar mínútur í sjónum. Segir í DV að við þetta hitastig sjávar sé gert ráð fyrir að menn lifi af í þrjár mínútur í mesta lagi.

„Ég hugsaði bara um að halda á mér hita og reyna sem minnst á mig. Ég varð mjög smeykur þegar ég fjar­lægðist skipið í myrkrinu og var kominn 80–100 metra burtu frá því. Mér var farið að kólna mjög mikið þegar ég sá bátinn koma í áttina til mín og þá vissi ég að lífi mínu var borgið,“ segir Sigur­björn um björgunina.

Hann lýsti atburða­rásinni. 

„Við vorum fjórir félagarnir uppi á dekki að láta trollið fara þegar ég flæktist með annan fótinn í keðju. Skyndi­lega strekktist á keðjunni og við það kastaðist ég í sjóinn. Félagarnir voru fljótir að bregðast við. Tveir hlupu í björgunar­hringina og köstuðu þeim útbyrðis. Þegar þeir sáu að ég var búinn að ná hringnum hlupu þeir til að gera bátinn kláran. Þeir voru mjög fljótir að setja bátinn niður og ná í mig. Björgunar­aðgerðin gekk fullkomlega upp og hver sekúnda var nýtt til hins ýtrasta. Það hefði ekki mátt muna miklu því í svona aðstæðum er þetta spurning um sekúndur. Félagar mínir fá topp­einkunn fyrir björgunar­starfið og það er þeim að þakka að ég er á lífi.“

„Eftir að ég kom aftur um borð var ég mjög sjokkeraður. En ég náði sem betur fer að jafna mig fljótlega á öllu saman og allir félagar mínir um borð gerðu sitt til að láta mér líða betur. Mórallinn er einstak­lega góður um borð í skipinu og það hjálpaði mér mikið. Það kom fljótlega læknir úr varð­skipinu um borð og skoðaði mig,“ sagði Sigur­björn í DV fyrir 24 árum. 

Stundin ræddi við Sigur­björn um þess lífs­reynslu árið 2006 eða þegar 20 ár voru liðin frá óhappinu,

„Ég man þetta atvik mjög vel. En ég hélt ró minni allan tímann og upplifði mig ekki í lífsháska,” segir Sigur­björn Þórmundsson, fyrr­verandi háseti á Snorra Sturlu­syni RE.

Helkaldur í sturtu

Sigur­björn, sem starfaði sem stál­smiður, segir að atvikið hafi ekki haft nein sérstök áhrif á hann. Hann hafi þó seinna gert sér grein fyrir því að hann hafi verið í lífsháska. Læknir sem kom frá varðskipi til að skoða Sigur­björn taldi það vera krafta­verki nær að hann skyldi lifa af í fjórar mínútur í ísköldum sjónum. Sjálfur man hann atvikið mjög vel.

„Við vorum að láta trollið fara þegar ég flæktist í dauðalegg og kastaðist út fyrir og lenti á bakinu í skut­rennunni. Þaðan rann ég síðan í sjóinn. Ég reyndi að grípa um vírana en náði ekki taki. Aftur á móti tókst mér að komast í björgunar­hring sem félagar mínir köstruðu til mín. Svo sá ég skipið fjar­lægjast,” segir hann.

Skip­verjar á Snorra voru fljótir að bregðast við og sjósettu léttabát. Tengda­faðir Sigurbjörns, sem starfaði sem vélstjóri á skipinu, sigldi bátnum að tengda­syni sínum og bjargaði honum. Sigur­björn segist hafa verið björguninni feginn þótt hann hefði allan tímann trúað á björgun.

„Ég var lengst af óhræddur og brást því rétt við. Ég er of kærulaus til að óttast. Þegar búið var að kippa mér um borð í bátinn grínaðist ég með það að við yrðum að leita að vettlingunum mínum sem voru nýjir. Hann hélt að ég hefði ruglast við volkið,” segir hann og hlær.

Sigur­björn var helkaldur og dreif sig strax í heita sturtu við komuna um borð í skipið. Þá brá honum óskaplega. Kuldinn hafði haft sýnileg áhrif

„Þegar ég horfði niður sá ég að ég var orðinn eins og kona um miðjuna. Typpið var nánast horfið,” segir hann og skelli­hlær að minningunni.

Sigur­björn fékk svo sjóðheita súpu hjá kokknum og fór síðan í koju.

„Ég var marinn eftir að hafa skollið í skut­rennuna. Að öðru leyti var allt í lagi með mig. Ég mætti til vinnu á næstu vakt,” segir hann,

Nokkru eftir atvikið í Smugunni hætti Sigur­björn á sjónum og fór í land þar sem hann starfaði meðal annars sem trygginga­ráðgjafi.

„Sjómennskan hentaði mér ekki til lengri tíma. En þetta atvik hafði ekkert með það að gera. Eftir­köstin voru í sjálfu sér engin þótt ég muni þetta eins og það hefði gerst í gær,” sagði hann við Stundina.

Þessi baksýnis­spegill birtist áður á Mannlif.is sjötta september 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu