Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein bjargaði í gær fiskiskipi sem var í vandræðum 15 sjómílur norðvestur af Garðskaga en Víkurfréttir greindu fyrst frá málinu.
Fiskiskipið hafði sent út aðstoðarbeiðni síðdegis í gær en samkvæmt þeirri beiðni var aðalskrúfa skipsins óvirk en vélar í lagi. Sem betur var ekki nein yfirvofandi hætta á ferðum en var engu að síður ljóst að skiptið þyrfti á aðstoð að halda. Það reyndist þó vera erfitt að koma dráttartaug í skipið og var björgunarskipið Jóhannes Briem sent á staðinn. Á endanum tókst þó að festa taug frá Hannesi í fiskiskipið en Jóhannes hélt áfram sinni siglingu ef ske kynni að sú taug skyldi slitna.
Skipin komust öll til baka í land í Njarðvík og verður unnið að viðgerðum fiskiskipsins þar.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndskeið frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir