Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Björgvin segir Sigurð Inga leggja til gjöld „til þess að bæta í hripleka fjármálastjórnun sína“

Björgvin Valur Guðmundsson
Björgvin Valur Guð­munds­son

Björgvin Valur Guðmundsson, kennari og áhuga­maður um fornleifa­rannsóknir á Stöðvar­firði, skrifaði í gær færslu á Facebook þar sem hann talaði um hugmyndir Sigurðar Inga Jóhannesson innviða­ráðherra um gjöld í göng Íslands. Gaf Björgvin Valur Mannlífi góðfúslegt leyfi til birtingar á færslunni.

Sjá einnig: Gjaldtaka í öllum jarð­göngum landsins: „Hljómar þetta afskaplega illa fyrir okkur“

Björgvin Valur, sem hefur fyrr á árum verið í framboði fyrir Samfylkinguna og verið áberandi í samfélags­umræðunni, gagnrýnir hugmyndir Sigurðar Inga og þá „forheimskandi pólitík sem stunduð er hér á landi“ eins og hann orðaði það.

„Sigurði Inga innviða­ráðherra og formanni Framsóknar­flokksins tókst í vikunni að fá upp á móti sér alla þá sem þurfa reglulega að aka um jarðgöng til þess að sinna brýnum erindum eins og t.d. matar­innkaupum eða fara til læknis. Þetta gerði hann með því að leggja til, að til dæmis manneskja sem býr á Breið­dalsvík og er vön að aka til Reyðar­fjarðar til þess að komast í næstu almennilegu „lágvöruverðs­verslun“ og borgar 340 krónur fyrir hvern lítra af eldsneyti sem hún notar á leiðinni, þurfi bráðum að greiða veggjald til þess að fara um Fáskrúðs­fjarðargöng og fjármagna þar með um leið næstu jarðgöng á Íslandi.“

Björgvin Valur talar því næst um Seyðfirðinga sem hann segir hafa móðgast persónu­lega vegna gagn­rýninnar enda hafa þeir beðið eftir Fjarðar­heiðar­göngunum um árabil.

„Seyðfirðingar tóku því síðan persónu­lega þegar húsmæður og -feður í þessari stöðu mótmæltu þessu (kannski full harkalega sum okkar) en ég held að við sem búum dreift og þekkjum vondar samgöngur á eigin skinni, höfum ekki verið að veitast að Seyðfirðingum heldur ráðherranum og hinni forheimskandi pólitík sem er stunduð á Íslandi.“

Þá kemur Björgvin Valur inn á kaup Síldarvinnslunar í Neskaups­stað á Vísi í Grindavík sem kunngjörð voru fyrir stuttu. Vill færslu­höfundur meina að þetta hafi farið fyrir brjóstið á fólki, að til sé svona mikill peningur í landinu eða „eitt fyrirtæki geti keypt annað skuldsett fyrirtæki“ á meðan fólk á Breið­dalsvík, Stöðvar­firði og Fáskrúðs­firði „greiði fyrir næstu samgöngu­mannvirki í landinu um leið og þær skreppa af bæ til þess að kaupa í matinn.“

„Það vildi nefnilega svo til að um leið og Sigurður Ingi opinberaði þessa hugmynd sína, þá keypti eitt sjávar­útvegs­fyrirtæki á Íslandi annað fyrir upphæð sem væri hægt að klára um það bil 75% af Fjarðar­heiðagöngum fyrir, m.v. áætlanir Vega­gerðarinnar.

Það var eiginlega þetta sem fór (og fer) fyrir brjóstið á fólki; að það skuli vera til svona mikið af peningum í landinu að eitt fyrirtæki geti keypt annað skuldsett fyrirtæki um leið og ráðamenn ætla að láta húsmæður (og guð fyrirgefi mér fyrir að segja þetta) á hinum fagur­grænu Framsóknar­engjum, Breið­dalsvík, Stöðvar­firði og Fáskrúðs­firði, greiða fyrir næstu samgöngu­mannvirki í landinu um leið og þær skreppa af bæ til þess að kaupa í matinn.“

Að lokum talar Björgvin Valur um vilja­leysi íslenskra stjórn­valda til að sækja peninga þangað sem þeir eru og kemur einnig með kenningu um hugmyndir Sigurðar Inga.

„Það er vilja­leysi íslenskra stjórn­valda til þess sækja peninga þangað sem þeir eru en um leið pönkast á almenningi með fáranlegum gjald­tökum til þess að bæta í hripleka fjármála­stjórnun sína sem reitir fólk til reiði og verður þess valdandi að það segir og skrifar hluti sem særa þá frekar sem þegar eru í sárum.Annars grunar mig að þessum hugmyndum Sigurðar Inga sé ætlað að gera útaf við hugmyndina um Seyðis­fjarðargöng akkúrat svona; fólk mun mótmæla þeim og þá geta stjórn­völd hætt við þær og sagt: Sorrí en við höfum ekki efni á þessum göngum.

Sækjum peningana þangað sem þá er að finna en ekki í halla­rekstur heimil­anna.“

Færslan vakti talsverða athygli en Egill Helgason, fjölmiðla­maður spurði Björgvin Val í athuga­semdum út í svokölluð T-göng um Mjóafjörð.

„Segðu mér eitt sem austfirðingur – eru T-göng um Mjóafjörð ekki betri hugmynd en hin ógnar­löngu Fjarðar­heiðargöng?“

Upp úr spurningu Egils spruttu líflegar umræður sem hægt er að lesa undir færslu Björgvins Vals hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram