Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hafnarfjarðabær búinn að týna barnaverndargögnum: „Ég myndi kalla þetta upplýsingaóreiðu“

Ráðhús Hafnarfjarðar.
Ráðhús Hafn­ar­fjarðar. Mynd: Larus Karl Ingason

Engin gögn finnast hjá Hafnar­fjarðabæ um konu sem vistuð var hjá sex mismun­andi aðilum á árunum 1980 til 1986. „Upplýsinga­óreiða,“ segir lögmaður konunnar.

Kona nokkur segist í samtali við Mannlíf ekki geta fengið að sjá nein gögn um það hvers vegna hún hafi verið vistuð á vegum Barna­verndar Hafnar­fjarðar, hjá sex mismun­andi ábyrgðar­aðilum er hún var barn, vegna þess að engin gögn finnast um málið.

Upplýsingaóreiða

„Ég myndi kalla þetta upplýsinga­óreiðu,“ sagði Eva Hauks­dóttir, lögmaður konunnar og hélt áfram. „En já, þetta er alveg satt, Hafnar­fjarðarbær er búinn að týna öllum gögnum, það finnast engin gögn og við vitum ekki hvort þau hafi verið brennd, þeim hafi verið fleygt á haugana eða hvort þau séu í einhverjum pappa­kassa undir rúmi hjá meðlimi Barna­verndar eða annars starfs­manns sveitar­félagsins.“ Segir Eva að konan hafi aldrei fengið almennileg svör við því af hverju hún var vistuð til að byrja með, hjá ábyrgðar­aðilum. „Það hvernig haldið var utan um svona gögn fyrir nokkrum áratugum, það var bara allt í lamasessi og fólk fær ekki almennilegar upplýsingar. Varðandi þessa konu, þá vita það allir sem hana þekkja, að hún var vistuð hér og þar, tvist og bast og hún fékk aldrei skýringar á því og hefur aldrei fengið skýringar á því af hverju hún var vistuð og af hverju var hún vistuð þar en ekki einhversstaðar annars staðar.“

Eva segir þetta ekki aðeins eiga við um Hafnar­fjarðabæ. „Þetta á ekki bara við um Hafnar­fjarðabæ, ég hef líka verið að vinna fyrir fólk sem vistað var á Silunga­polli, sem fær engar upplýsingar um sína vistun. Bara hvar þau voru en ekkert annað.“

Vonast eftir sanngirnisbótum

Þá segir Eva að það hafi ekki verið í lögum á þeim tíma, nein fyrirmæli um það hvernig eigi að meðhöndla og geyma slík gögn. „Þannig að það er ekkert hægt að gera, ekki hægt að sækja bætur eða neitt út af þessari upplýsinga­óreiðu. Og við vitum ekki einu sinni hvort trúnaður hafi verið brotinn af því að við vitum ekki hvað varð af þessum pappírum. Það getur allt eins farið svo að þau finnist í kassa þegar erfingjar bæjar­starfsmanna fara að gera upp dánarbú. Þetta er auðvitað bagalegt og vegna þess að engin lög voru sett um þetta á sínum tíma, þá á fólk engan rétt á bótum fyrir þessa ömurlegu aðstöðu. Ég er hins vegar að vona að þótt þetta fólk eigi engan lagalegan rétt þá verði því boðnar sanngirnis­bætur því það setur mark á sálarlíf fólks að fá ekki að vita um ástæðunar fyrir afdrifa­ríkum ákvörðunum sem teknar voru um líf þess á vegum stjórn­valda í barnæsku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim