Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Ferðamönnum bjargað á síðustu stundu eftir skyndiflóð á Tenerife

Neyddust til að flýja upp á þak á rútu þegar göt­urnar breytt­ust í ár

Breti veifar á hjálp
Breti veifar á hjálp Slökkvi­lið­inu tókst að bjarga öllum far­þegum rút­unnar Mynd: Trausti Hafsteinsson

Skelfing greip um sig í Puerto de la Cruz í gær­kvöldi eftir að rúta með breskum ferða­mönnum fest­ist í flóðum sem storm­ur­inn Therese olli.

Mikil úrkoma, sem hefur leikið norð­ur­hluta eyj­ar­innar grátt og sett svæðið á hæsta við­bún­að­ar­stig vegna „óvenju­legrar hættu“, olli skyndi­legum flóðum. Rútan fest­ist á svæði sem kallað er El Pulpo og varð að hluta á kafi í vatni.

Myndbönd sem dreifst hafa á sam­fé­lags­miðlum sýna far­þega reyna að kom­ast út um þak rút­unnar þar sem vatn hafði lokað hurð­unum. Heyra mátti í fólki kalla á hjálp á meðan vatnið hækk­aði hratt og götur breytt­ust í straum­harðar ár.

Slökkvi­liðs­menn náðu þó fljót­lega að bjarga öllum úr rút­unni með stigum og komu þeim í öruggt skjól. Engin meiðsl hafa verið til­kynnt.

Atvikið átti sér stað á sama tíma og neyð­ar­við­vör­un­ar­kerfið ES-Alert var virkjað og sendi hávær skila­boð í far­síma fólks á norð­ur­hluta eyj­ar­innar til að vara við yfir­vof­andi flóða­hættu.

Vitni segja að úrkoman hafi verið svo mikil að vatn flæddi skyndi­lega um götur bæj­ar­ins og kom fólki í opna skjöldu.

Yfirvöld hafa ítrekað hvatt íbúa og ferða­menn til að halda sig inn­an­dyra og forð­ast allar ferðir nema brýna nauð­syn beri til. Spáð er allt að 60 milli­metrum af regni á einni klukku­stund og er ástandið sagt mjög hættu­legt.

Fólk er sér­stak­lega varað við að fara út á flóða­svæði, nálg­ast árfar­vegi eða reyna að fara yfir vatn, hvort sem er gang­andi eða akandi, á meðan storm­ur­inn heldur áfram að ganga yfir eyj­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana