Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Jóna lögfræðingur segir stúlkum byrluð ólyfjan með sprautum: „En afhverju varstu ekki í brynju?“

„Hvað er að frétta hérna í útlandinu? Jú allt ágætt svona almennt nema ný byrlunar­aðferð er að skjóta upp kollinum hér í Edinborg og Liverpool amk, þar sem það er bókstaf­lega verið að stinga konur með byrlunar­efnum.“

Svona hljómar færsla Jónu Þ. Péturs­dóttur á Twitter í gær. Jóna er lögfræðingur og ungmenna­fulltrúi Íslands á sviði mann­réttinda­mála hjá Sameinuðu Þjóðunum.

Færslu sinni til stuðnings sýnir Jóna skjáskot og myndir. Á einni myndinni, sem kemur frá Edinburgh Anonymous, samtökum sem birta nafn­lausar frásagnir nemenda í Edinborg um kynferðis­ofbeldi, stendur:

„Við höfum heyrt höfum heyrt ótal frásagnir af nemendum sem lent hafa í því að vera byrluð ólyfjan með sprautu, á skemmtistöðum í Edinborg. Sprautan skilur eftir sig litla, rauða bólu á baki þeirra.

Einkennin eru svipuð því þegar einstaklingum er byrluð ólyfjan með töflum: skyndilegt ölvunar­ástand, sljóleiki og ógleði.“

Á annarri mynd gefur að líta frásögn stúlku sem varð vitni að slíkri árás á systur sína. Meðfylgjandi er mynd af baki systurinnar, þar sem sjá má rauðan blett.

Hún biðlar til annarra stúlkna að fara varlega:

„Stelpur, vinsamlegast varið ykkur í kringum miðborg Liverpool.“

Hún segir frá því að hún, ásamt systur sinni, hafi verið á bar í miðbænum þegar einhverju var skyndi­lega sprautað í bak systur hennar. Systir hennar hafi fundið fyrir því þegar eitthvað stakkst inn í bakið á henni og var dregið út. Hún hafi orðið mjög hrædd og þær farið að skoða á henni bakið. Þar sáu þær ummerkin.

Hún tekur það fram að málið sé undir rannsókn lögreglu og að systir hennar hafi ekki verið sú eina sem lenti í slíkri árás umrætt kvöld.

„Vinsamlegast passið að vera öruggar og nálægt vinum ykkar þegar þið farið út að skemmta ykkur, sérstak­lega þegar þið eruð í kringum karlmenn sem þið þekkið ekki.“

Færsla Jónu vekur hörð viðbrögð á Twitter.

Ein athugasemd undir færslu Jónu hljóðar svo:

„Nú er bara að bíða og sjá hvernig fólk nær að koma ábyrgðinni yfir á konur. „Þú passaði upp á drykkinn þinn allt kvöldið. En afhverju varstu ekki í brynju?“

„Vá hvað þetta er scary,“ segir Ólöf Tara, meðlimur í baráttu­hópnum Öfgum.

„Ömurlegt. Og samt eru þolendur alltaf vanda­málið, einhvernveginn,“ segir Fríða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli