Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Liðþjálfi trylltist í umferð og beinti byssu að unglingsstúlku: „Viltu fokking deyja?“

Lið­þjálfi í banda­ríska flug­hernum brjál­að­ist í umferð­inni fyrr í mán­uð­inum og beindi byssu að ung­lings­stelpu og öskr­aði „Viltu fokk­ing deyja?!“.

New York Post segir frá því að fyrsti lið­þjálfinn Charles Bass III, fer­tugur, hafi verið að keyra í Surprise, Arizona þegar hin 19 ára Shi´Ann Bamba keyrði í veg fyrir hann, fimmta des­em­ber síð­ast­lið­inn. Kemur þetta fram í dóm­skrá.

Charles Bass III

Bamba hafði skutlað systk­ini sínu í grunn­skóla í bænum, rétt áður en hún lenti í lið­þjálf­anum.

Eftir að Bamba hafði keyrt í veg fyrir Bass keyrðu þau um tíma hlið við hlið, þar til þau stopp­uðu á rauðu ljósi. Þá tók Bamba fram sím­ann og hóf að taka upp hinn reiða bíl­stjóra.

„Viltu fokk­ing deyja?“ heyr­ist Bass öskra á meðan hann beinir skamm­byssu í átt að ung­lingnum, eins og sjá má á mynd­bandi sem birt­ist fyrir neðan frétt­ina.

Hinn skelk­aði ung­lingur heldur því fram að Bass, sem hefur verið 21 ár í flug­hernum, hafi beint byss­unni að henni í annað skiptið, rétt áður en hann keyrði í burtu.

Segir Bamba að það hafi tekið hana smá­tíma að átta sig á því hvað hefði gerst, áður en hún hringdi í móður sína í geðs­hrær­ingu.

„Ég hringdi í mömmu mína rétt eftir að ég átt­aði mig á því að ég hefði getað dáið þarna,“ sagði Bamba við fjöl­miðla.

Bamba seg­ist þó ósam­mála því að hún hefði keyrt í veg fyrir Bass. „Ég skipti ekki um akrein. Ég var ekki einu sinni byrjuð að gera til­raun til þess að skipta um akrein.“

Ung­ling­ur­inn hringdi í lög­regl­una í Surprise eftir atvikið og sýndi þeim mynd­skeiðið.

Faðir Bamba sá bíl Bass síðar þennan dag á sama svæði og þar sem öku­æðið rann á hann og til­kynnti núm­era­plöt­una til lög­regl­unnar.

„Það er ekk­ert sem kom út úr mínum munni sem gat leitt til þess að byssu yrði beint að mér, og ég var ein í bílnum,“ sagði stúlkan við fjöl­miðla Vestra.

Bass kom sjálf­vilj­ugur til lög­regl­unnar og við­urk­endni sinn þátt í atvik­inu.

Lög­reglan segir að Bass hafi verið settur í gæslu­varð­hald 12. des­em­ber af teymi sem sam­anstendur af Verk­efna­sveit banda­rískra her­manna, banda­ríska flug­hernum og lög­regl­unni í Surprise.

Bass kenndi áfallastreituröskun sem og ofurár­verkn­is­vanda sem hann glími við, um atvikið og sagði sá glugga bíl­stjór­ans koma niður og hafi ekki vitað hvað hún væri að gera.

Sagðist Bass ekki vita af hverju hann hafi beint byssu sinni að Bamba í seinna skiptið, eftir að hann átt­aði sig á að bíl­stjór­inn væri ung kona.

Hann var ákærður fyrir margar ákærur, þar á meðal fyrir alvar­lega lík­ams­árás með ban­vænu vopni, óreglu­lega hegðun með vopni og fyrir að skapa hættu, sam­kvæmt dóms­gögnum.

Í Arizona getur ein­stak­lingur sem á yfir höfði sér 3. flokks ákæru fyrir alvar­lega lík­ams­árás með ban­vænu vopni, átt yfir höfði sér að 8,75 ára fang­elsi að með­al­tali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest