Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Bjórland býður upp á frumlegt jóladagatal – 24 bjórar frá 22 brugghúsum

Jóladagatal Bjórlands 2023
Jóla­daga­tal Bjór­lands 2023 Mynd: Trausti Hafsteinsson

Bjórland er vefverslun þar sem hægt er að panta íslenskan handverks­bjór en fyrir­tækið sérhæfir sig í handverskbjórum frá litlu brugg­húsunum, alls staðar af landinu.

Bjórland er fyrsta einka­rekna vefverslunin sem opnaði fyrir áfengis­sölu á netinu. „Við opnuðum 2020, í miðju Covid og þegar við ætluðum að selja inn á veitinga­staði, var okkur sagt að heimurinn væri að fara að enda og að við gætum ekki selt þangað,“ segir Þórgnýr Thoroddsen, einn af eigendum Bjórlands í samtali við Mannlíf. „En við vorum búnir að fjárfesta í bjór og þurftum að koma honum út þannig að við réðumst í það að selja hann á netinu. Við hugsuðum með okkur að annað hvort gætum við bara lokað þessum bissness eða gert þetta.“

Fyrir­tækið fer ansi frumlegar leiðir í að koma bjór til fólks en til að mynda er boðið upp á áskrifarpakka. „Þar sendum við bjór til bjóráhugafólks sem vill fá allt það nýjasta og ferskasta hverju sinni,“ segir Þórgnýr. „Við erum með eitthvað um 22 brugghús á okkar snærum út um allt land. Brugg­húsin eru stundum að senda okkur bjóra sem jafnvel fara ekki í sölu annars staðar. Þau eru kannski að selja bjórinn á kútum en bara í flöskum og dósum hjá okkur.“ Hægt er að velja um þrjár stærðir í bjóráskriftinni. Minnsti pakkinn er með að meðaltali átta til níu bjóra, miðstærðin inni­heldur á milli 16 og 17 bjóra og sá stærsti er í kringum 21, 22 bjóra, sem fólk fær í hverjum mánuði. „Við köllum pakkana almennan borgara, góðborgara og stór­borgara. Það er stéttar­skipting í Bjórlandi,“ segir Þórgnýr og hlær og bætir svo við: „Við förum ekkert leynt með það.“

En nú er að koma jól og Bjórland lætur ekki sitt eftir liggja í jólaæðinu sem grípur landann gjarnann um þessar mundir, en hægt er að kaupa bjór jóla­dagatal hjá fyrir­tækinu. „Þetta eru sem sagt 24 bjórar frá 22 brugg­húsum og svo fylgir daga­talinu bæklingum með smávægilegum upplýsingum um bjórinn eða brugg­húsið,“ segir Þórgnýr og heldur áfram. „Við höfum sem sagt raðað í röð sem ætti að stemma nokkuð vel yfir allan mánuðinn. Og þetta er bjór af öllum tegundum, allt frá lagerum og yfir í súrbjóra, stout og rauðöl og ég veit ekki hvað og hvað. Og IPA.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur