Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Ómar lögmaður segir eina manneskju vera tvo Rúmena: Morgunblaðið birtir uppspunann

Ómar R. Valdimarsson
Ómar R. Valdi­mars­son Mynd: Þór Ægisson

Ómar R. Valdimarsson lögmaður heldur því fram í viðtali við Morgun­blaðið að ofgreiðsla sem honum var gert að endur­greiða hafi verið hafi verið vegna tveggja rúmenskra karla sem lentu í bílslysi en ekki einnar manneskju. Mannlíf sagði upphaf­lega frá þessu máli sem staðfest er að snýst um einstakling sem slasaðist í bílslysi. Frásögn Ómars í Morgun­blaðinu vekur undrun þeirra sem komu að úrskurðinum og þekkja til mála. Þykir heimildar­mönnum Mannlífs að lögmanninum hefði mátt vera ljóst að tilbúningur hans um Rúmenana tvo hlyti að komast upp.

Skjáskot úr úrskurði

Í niður­stöðu Úrskurðar­nefndar lögmanna er talað er um einn sóknar­aðila. Í viðtalinu við Morgun­blaðið segir Ómar úrskurðar­nefnd lögmanna á villigötum í máli sem tekið var fyrir þann 14.mars síðastliðinn. Þar var Ómari gert að endur­greiða skjólstæðingi sínum 1.859.801 krónur að meðtöldum virðis­aukaskatti að frádregnum innborgunum vegna vinnu sinnar við innheimtu slysabóta. Staðfest er að þarna er einungis um að ræða eitt fórnar­lamb en ekki tvo menn.

Hótar málsókn

Úrskurða­nefnd lögmanna skipa Valborg Þ. Snævarr, Einar Gautur Steingrímsson og Kristinn Bjarnason. Varamenn nefndarinnar eru Hulda Katrín Stef­ánsdóttir, Grímur Sigurðsson og Helgi Birgisson. Í viðtalinu við Morgun­blaðið segir Ómar það einnig athugunar­efni að í úrskurðar­nefnd sitji þrír lögmenn sem eru í samkeppni við aðra starfandi lögmenn og bætir við að hann hafi fengið til sín viðskipta­vini sem áður hafa fengið þjónustu lögmanna sem sitja í nefndinni. „Það er ekki bara einkennilegt heldur algjör­lega óforsvaranlegt að nokkrir lögmenn á litlum samkeppnis­markaði fari með agavald yfir kollegum sínum,“ sagði Ómar ósáttur og boðaði að hann myndi fara með málið fyrir dómstóla.

Áður áminntur

Þetta er ekki vera í fyrsta sinn sem vinnu­brögð Ómars eru talin ámælis­verð en hefur verið fjallað um nokkur þeirra mála í fjöl­miðlum á undan­förum árum. Var það árið 2018 er Ómar var áminntur af úrskurðar­nefnd lögmanna vegna háttsemi sinnar í garð umbjóðanda síns fyrir að gefa út tilhæfu­lausan reikning. Í úrskurði héraðs­dóms var kveðið á um að þóknun Ómars, 148 þúsund krónur, greiddist úr ríkis­sjóði. Fyrir Hæstarétti var þóknun Ómars 124 þúsund krónur til viðbótar. Ómar taldi upphæðina aðeins ná yfir hluta þeirrar vinnu sem hann vann og gaf hann út reikning bæði vegna aksturs og upphæðar sem vantaði, alls rúmlega 325 þúsund krónur. Úrskurða­nefndin taldi hvorki lögbundna né samnings­bundna stoð fyrir reikningnum sem var í kjölfarið felldur niður.

Þá taldi Lands­réttur vinnu­brögð Ómars sérstak­lega aðfinnslu­verð í dómi þann 25.mars árið 2022 eftir að Ómar áfrýjaði dómi héraðs­dóms þar sem byggt var á því að lögmaður skjólstæðings hans hafi sýnt af sér saknæma háttsemi við vinnslu og frágang kaupmála. Niður­staða héraðs­dóms sem var staðfest af Lands­rétti var að lögmaðurinn hafi ekki sýnt af sér saknæma háttsemi og var hann sýknaður af kröfum skjólstæðings Ómars.

Lands­réttur tiltók sérstak­lega í niður­stöðu sinni að endurrit frá Ómari fyrir Lands­rétti af aðila- og vitna­skýrslum í héraði voru afar ónákvæm og á köflum villandi. Var lögmanninum sem Ómar höfðaði málið gegn því nauðsynlegt að leggja fram rétt endurrit. Lands­réttur taldi þennan frágang á gerð endur­ritanna sérstak­lega aðfinnslu­verðan.

Þá braut Ómar einnig gegn reglum nr. 2/2018 um málsgögn í einka­málum. Samkvæmt reglunum ber lögmanni að hafa samráð við lögmann gagnaðila um gerð málsgagna og hvaða skjölum sem lögð voru fram í héraði væri ofaukið vegna flutnings málsins fyrir Lands­rétti. Ómar staðfesti við aðal­meðferð málsins að hann hafi ekki gætt að þessu. Þá hafi Ómar einnig án nokkurs samráðs sleppt því að leggja fram þrjú héraðsdóms­skjöl án þess þó að vekja athygli á því með því að geta þeirra í efnisskrá fremst í máls­gögnum sem yfir­strikaðra skjala. Lands­réttur sá sig knúinn til að átelja þessi vinnu­brögð sérstak­lega í niður­stöðum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra