Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Woolroom sérhæfir sig í svefnvörum úr ull: „Líkaminn skynjar gæðin og nær mun betri endurheimt“

Vilmundur skoðar heilsusamlegar svefnvörur. Ljósmynd: Aðsend
Vil­mundur skoðar heilsu­sam­legar svefn­vörur. Ljósmynd: Aðsend

Woolroom er verslun sem sérhæfir sig í svefn­vörum úr ull. Vilmundur Sigurðsson, einn eiganda verslunarinnar, ræddi við Mannlíf um þetta töfraefni.

Woolroom byrjaði smátt fyrir tæpum fimm árum í Auðbrekku 24 í Kópavogi og var afsprengi mikillar umræðu um líklega skaðsemi plastefna í rúmdýnum og koddum.

Að sögn Vilmundar Sigurðs­sonar eins af eigandum verslunarinnar, sýndi það sig fljótt að mikil þörf er á þessum valmöguleika gegn miklu úrvali gerviefna svefn vöru sem hefur í raun yfirtekið markaðinn síðustu áratugi. Segir hann að móttökurnar hafi verið stórkostlegar en nú fimm árum seinna er Woolroom flutt í stærra og betra húsnæði í Selmúla, milli Ármúla og Síðumúla. Verslunar­stjóri og eigandi Woolroom er Svala Möller eiginkona Vilmundar en hjónin Gunnar Guðmundsson og Ingunn Brynjólfs­dóttir eru einnig eigendur, ásamt Vilmundi.

„Við erum að tala um tvo póla,“ segir Vilmunur í byrjun samtalsins og hélt áfram. „Á mínus endanum eru gerviefni, sem til dæmis Neytenda­samtökin hafa gefið út að hafi neikvæð áhrif í fatnaði, samkvæmt nýjasta tölublaði þeirra. Plastefni, Flís og önnur gerviefni eru bara nokkurra tuga gömul og þannig lítil reynsla af þeim.“

Segir hann að Umhverfis­stofnun hafi skrifað á heimasíðu sína að mjúkt plast í barna­leikföngum sé skaðlegt heilsu barna og að þau eigi ekki einu sinni að hafa þau nálægt sér. Staðreyndin sé sú að í 95 prósent rúmdýna sem notaðar eru á Íslandi, eru svampefni í efsta laginu, sem er í raun mjúkt plast með loftbólum í og geta inni­haldið allt að 61 útgufunar­efni. „Á plús endanum er ullin sem vitað er að hefur hátt orkugildi, er heilnæm og hefur verið notuð frá örófi alda í fatnað og svefn vöru, rúmdýnur, kodda, og svo framvegis. Ullin er hita­jafnandi og mjög rakadræg, hún fylgir hitastigi líkamans og jafnar það á full­kominn hátt.“

Segir Vilmundur að ull í útivistar­fatnað og svefn­vörur, sé „stórkostlegt efni sem líkaminn elskar og finnur gríða­legan mun á andspænis gervi­efnum.“ Hélt hann áfram: „Við vöknum fersk og úthvíld eftir svefn á ullardýnu, með ullar­kodda og ullarsæng, líkaminn skynjar gæðin og nær mun betri endur­heimt en á gervi­efnum. Svita­myndun er oft mikil á gervi­efnum, en hún heyrir sögunni til með Woolroom ullar svefn­vörum.“ Segir hann að það sem hafi mest áhrif sé ullar­dýnan sjálf.

Vilmundur segir viðskipta­vinina afar ánægða með vörurnar þeirra. „Við í Woolroom höfum fengið fjöldan allan af sögum frá fólki sem lýsir því að vakna aftur alveg endurnærð og fersk, svita­myndun í svefni er ekki merkjanleg og lífsgæði aukast.“

„Mikil vitundar­vakning hefur verið síðustu árin um mikilvægi heilnæmra efna í nærumhverfi okkar,“ segir Vilmundur og heldur áfram: „Og spilar þar svefn­varan stærsta hlut­verkið, því þar erum við í viðkvæmu viðgerðar­ástandi stóran hluta ævinnar.“

Staðhæfir hann að svefn­varan sé þess vegna sú vara sem hefur mest umhverfis­mengandi áhrif á okkur, þó hún hafi janvel einungis örlitla efna­útgufun, „því við erum í alveg varnar­lausu ástandi þar í svo langan tíma.“

Woolroom leggur gífurlega áherslu á að engin hætta sé á neikvæðum áhrifum á líkamann, heldur þvert á móti er það að sýna sig að ullin hefur mjög jákvæð áhrif á okkur í svefni, að sögn Vilmundar. Þá séu ullar­svefnvörur séu vinsælar á meðal íþrótta­fólks þar sem þær virðast hraða endur­heimt eftir erfiðar æfingar.

Vilmundur segir að Woolroom selji mikið úrval af af ullar­dýnum, ullar­koddum, ullar­sængum, ullar­hlífð­arlökum, ullar­mjúktoppum, ullar­gormatoppum og ullar­teppum. Einnig sé lögð áhersla á ullar­svefnvörur fyrir börn. „Woolroom hefur hlotið frábærar móttökur og hefur stuðlað að miklum breytingum á íslenskum svefn vöru­markaði á skömmum tíma.“ Að lokum segir Vilmundur: „Woolroom er alvöru valmöguleiki fyrir fólk til að tryggja öruggan og heilnæman svefn án aðkomu skaðlegra útgufunar­efna. Hita­jöfnun og raka­drægni er lykillinn í Woolroom ullar­svefn­vörunum.“

Hægt er að lesa meira á heimasíðu Woolroom á woolroom.is .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur