Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Stríðið á sjúkrahúsinu

Mynd/Aldís Páls
Mynd/Aldís Páls

Ósætti hefur ríkt innan veggja SÁÁ um nokkurt skeið. Spjótin beinast að Arnþóri Jónssyni, formanni SÁÁ, og Þórarni Tyrfings­syni, fyrr­verandi yfir­læknis og stjórn­anda á Vogi, og eru þeir sakaðir um einelti í garð æðstu stjórn­enda á Vogi. Þrátt fyrir að Þórarinn hafi hætt klínísku starfi í maí 2017 og ekki unnið við meðferðina á stofnuninni síðan þá gegnir hann enn hlutverki innan samtak­anna, jafnvel of stóru að mati ýmissa heimilda­manna Mannlífs og er hann sakaður um að hafa að tjaldarbaki unnið gegn núverandi yfir­mönnum heilbrigðis­sviðsins. Þá er Arnþór formaður sagður ganga erinda yfir­læknisins fyrr­verandi innan framkvæmda­stjórnar SÁÁ.

Teymi yfirkvenna

Valgerður Á. Rúnars­dóttir tók við starfi framkvæmda­stjóra lækninga á Vogi af Þórarni sumarið 2017. Þétt við bak hennar hafa undan­farin ár starfað Ingunn Hans­dóttir yfir­sálfræðingur og Þóra Björns­dóttir hjúkrunar­forstjóri. Miðað við stuðnings­yfir­lýsingar yfir­gnæfandi meirihluta starfs­fólks SÁÁ virðist stjórn þessara kvenna, undir forystu Valgerðar, haft góðan meðbyr. En frá því að Valgerður tók við hefur gætt sívaxandi erfið­leika í samskiptum milli hennar og Arnþórs, stjórnar­formanns samtak­anna. Svo mikilla erfið­leika að eftir því hefur verið tekið innan framkvæmda­stjórnarinnar og á haust­mánuðum var hjá henni óskað eftir óháðri úttekt á samskiptunum æðstu manna og stjórnar. Af þeirri úttekt varð þó aldrei og herma heimildir Mannlífs að Arnþór hafi hafnað beiðninni. Í kjölfarið lýstu ýmsir stjórnar­meðlimir yfir stuðningi við stjórnenda­teymi Vogs en fengu í kjölfarið bréf frá Arnþóri formanni þess efnis að nefndar­menn hefðu ekki heimild til að taka afstöðu gegn formanni.

Langur aðdrag­andi hefur því verið að því ófremd­ar­á­standi sem nú virð­ist ríkja innan SÁÁ en það virð­ist hafa sprungið með hvelli við upp­sagnir starfs­manna í síð­ustu viku.

Kornið sem fyllti mælinn

Langur aðdragandi hefur því verið að því ófremdar­ástandi sem nú virðist ríkja innan SÁÁ en það virðist hafa sprungið með hvelli við uppsagnir starfs­manna í síðustu viku. Þá sagði Arnþór formaður upp nokkrum starfs­mönnum innan Vogs og gaf fyrir því þær ástæður að spara þyrfti peninga samtak­anna þar sem fyrir liggi að fjáröflunar­leiðir munu bresta vegna kórónu­veiru­faraldursins. Valgerður blæs hins vegar á þær skýringar og segir ólíðandi að stjórn félaga­samtakanna sé að skipta sér af starfs­mannamálum og faglegum ákvörðunum hvað fíkni­meðferðina varðar á Vogi. Undir það hafa ýmis fagsamtök sérfræðinga tekið og fram hafa komið opinber­lega þrjár vantrausts­yfir­lýsingar á framkvæmda­stjórn SÁÁ vegna málsins og úr stjórninni hafa gengið þrír fulltrúar nú þegar. Vantrausts­tillögunum var hins vegar öllum vísað frá á aðal­stjórnar­fundi samtak­anna um liðna helgi þar sem Þórarinn, fyrr­verandi yfir­læknir, hélt eldræðu mikla.

Sinnir enn verkefnum

Þórarinn gegnir enn hlutverki innan SÁÁ eftir að hafa gert samkomulag þess efnis við Arnþór formann og framkvæmda­stjórnina. Að viðhalda gagna­grunni og sjúkra­skrám Vogs annars vegar og hins vegar að veita vímuefna­ráðgjöfum kennslu. Dóttir hans Hildur starfar sem læknir á Vogi og sonur hans, Björn Logi, situr í framkvæmda­stjórn samtak­anna ásamt því að nánir samstarfs­menn hans og vinir sinna lykil­hlutverkum, til dæmis Hörður Svavarsson og Theódór S. Halldórsson sem nýverið tóku sæti í framkvæmda­stjórninni í stað þeirra sem gengu úr henni í kjölfar uppsagn­anna um daginn. Það er raunar nokkuð eðlilegt að áhrifa Þórarins gæti enn í starfsemi samtak­anna þar sem hann stýrði starfinu við góðan orðstír lengi. Nú er hann hins vegar sakaður um að vilja áfram stýra að tjaldarbaki, bæði hluta félags­starfsins sem og hinum faglega hluta reksturs meðferðar­starfsins.

Val­ger­dur Rún­ars­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Dropinn sem fyllti mælinn

„Kannski átti stjórnin ekki von á því að ég myndi stíga niður fæti. Kannski er þetta gert í þeirri von að ég segði upp. Afleiðingarnar af þessu hafa verið rosalega miklar og ég finn alls staðar skilning á þeim sjónar­miðum sem ég er að setja fram,“ segir Valgerður Á. Rúnars­dóttir, framkvæmda­stjóri lækninga hjá SÁÁ.

Þau sjónarmið segir hún fyrst og fremst snúa að því að aðskilja þurfi stjórnun félaga­samtakanna og stjórnun heilbrigðis­stofnanna sem samtökunum tengjast.

„Ég vona að stjórn samtak­anna horfist í augu við það og beri gæfu til að leysa úr þessari alvarlegu stöðu. Það hlýtur bara að gerast. Fyrir mér er meðferðin aðal­atriðið og hverjir taka ákvarðanir um faglegan rekstur á sjúkra­stofnunum. Þær ákvarðanir eiga ekki að vera í höndum stjórnar félaga­samtaka.“

Rangt mat

Valgerður telur að stjórnin meti það rangt að fjár­stuðningur fáist ekki frá yfir­völdum eftir að fjáröflunar­leiðir samtak­anna brugðust vegna kórónu­veiru­faraldursins. Hún viðurkennir að hún hafi um nokkurt skeið glímt við mótbyr frá ákveðnum aðilum tengdum SÁÁ.

„Auðvitað hefur stjórnin gefið þær skýringar að þetta snúist um peninga en ég held að það sé bara ekki rétt mat hjá henni. Starfsemin þarna er svo miklu meira virði en svo að stjórn­völd vilji ekki aðstoða og passa upp á að þetta fari allt saman vel,“ segir Valgerður.

„Þetta er til­finn­inga­ríkt allt saman. Það eru margir sem eiga sam­tök­unum líf sitt að launa og ég er ein af þeim.“

„Ég er dálítið forvitin að komast að því hvaða hópur það er nákvæmlega sem styður stjórnar­formanninn á þessari vegferð. Þetta sem gerðist núna nýverið var dropinn sem fyllti mælinn. Þetta er tilfinninga­ríkt allt saman. Það eru margir sem eiga samtökunum líf sitt að launa og ég er ein af þeim. En það má ekki blanda tilfinningum inn í þetta.“

Hættir að öllu óbreyttu

Valgerður er hörð á því að standa við uppsögn sína verði hlutverki framkvæmda­stjórnar SÁÁ og sér í lagi hlutverki stjórnar­formanns samtak­anna ekki aðskilið frá faglegum rekstri sjúkra­stofnanna. Hún telur eðlilegt að núverandi formaður og stjórn stígi til hliðar enda sé mörgum brugðið við hversu einkenni­lega hafi verið staðið að málum.

„Það virðist nokkuð skýrt hvernig stjórnin vill hafa hlutina og kannski getur hún bara haft þetta svona. Ég get ekki hugsað mér að vera í þessu umhverfi áfram. Stjórnin verður þá bara að gera þetta með öðru fólki og það kemur auðvitað alltaf maður í manns stað,“ segir Valgerður og leggur þunga áherslu á að meðferðar­þjónusta SÁÁ snúist ekki um hana sjálfa.

„Það eru ein­hverjir þar sem vilja stýra öllu því hvað ger­ist inni á gólf­inu.“

Hún hefur miklar áhyggjur af því að aðgerðir stjórnarinnar og umræðan sem af þeim skapast sverti hið góða starf sem unnið hefur verið undir merkjum samtak­anna. „Ég hef bara áhyggjur af meðferðinni, það þarf annars konar stjórn yfir heilbrigðis­rekstrinum og hún verður að vera alveg laus við inngrip framkvæmda­stjórnar félaga­samtaka, m.a. um starfs­mannamál. Ég hef áhyggjur af því að núverandi stjórn samtak­anna geri sér ekki grein fyrir að þetta er ekki í lagi og ætli bara að láta þetta ganga eftir. Það eru einhverjir þar sem vilja stýra öllu því hvað gerist inni á gólfinu.“

Ekki fórnarlamb

Helst af öllu segir Valgerður auðvitað vilja halda áfram starfi sínu hjá SÁÁ. Hún lítur ekki á sig sem fórnar­lamb og hefur ekki áhyggjur af sjálfri sér.

„Ég vil auðvitað áfram leiða þetta starf, þetta er svo gríðar­lega mikilvæg starfsemi sem má ekki verða fyrir þessu hnjaski sem gjörningar framkvæmda­stjórnarinnar valda. Mér finnst svo glatað þegar þetta fer að snúast um einhverja einstaklinga. Ég þoli alls konar skít og hef synt fram hjá honum lengi. En ég er ekki pólitíkus og kann ekki þennan leik. Kannski er þetta brölt bara kolólöglegt allt saman en ég hafði ekki hugsað mér að láta lögfræðinga skoða það, mér finnst það ekki spennandi kostur. Ég lít ekki á mig sem fórnar­lamb og hef engar áhyggjur af sjálfri mér.“

Arnþór Jónsson, for­maður SÁÁ. Mynd / Spessi fyrir SÁÁ

„Alls ekki þessi vondi kall“

„Ég er góði gæinn og alls ekki þessi vondi kall sem verið er að gefa í skyn,“ segir Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, um þá umræðu sem að honum hefur beinst undan­farið. Hann segir of tímafrekt að fylgjast með umræðunni og segir meira máli skipta að vinna að góðum verkum samtak­anna.

„Þetta er allt á misskilningi byggt. Þetta eru mest sögur og spuni og umræðan heyrist mér vera ómakleg og smánarlegt að verið sé að veitast að Þórarni Tyrfings­syni núna þegar á móti blæs. Nú eru það verkin sem þarf að vinna sem skipta máli og ég vil ekki vinna að málefnum SÁÁ í beinni útsendingu.“

Þórarinn Tyrf­ings­son, fyrr­ver­andi yfir­læknir og fram­kvæmda­stjóri Vogs. Mynd / Gunnar Þór Andr­és­son

Á enga sök á ástandinu: „Ég er bara gamall karl og því verður ekki breytt“

„Ég reyni að segja allt gott, það eru ekki góðir tímar,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, fyrr­verandi yfir­læknir og framkvæmda­stjóri Vogs, þegar viðbragða hans var leitað um deilurnar sem uppi eru innan SÁÁ. Þar vísar hann til útbreiðslu kórónu­veirunnar en hann er heldur ekki par hrifinn af umræðu undan­farinna daga um starfsemi SÁÁ og því að vera dreginn inn í umræðuna þar sem hann hefur meðal annars verið sakaður um svokallaðar hrút­skýringar á stjórnar­fundum.

„Ég er bara gamall karl og því verður ekki breytt. Ég fer ekki að fara í kynskipti­aðgerð orðinn þetta gamall og menn mega alveg kalla mig hrút. Ég skammast mín ekkert fyrir það að vera karlmaður og ekki heldur fyrir það sem ég hef gert fyrir samtökin SÁÁ,“ segir Þórarinn.

Enginn leppur

Aðspurður segist Þórarinn ekki vera sá áhrifa­maður sem haldið hefur verið fram í umræðunni síðstu daga. Hann segir það ljóst að Arnþór stjórnar­formanni sé ekki fjarstýrt.

„Starfsemi SÁÁ stendur ekki og fellur með einum manni. Sú umræða er rugl og ég skil að hún komi upp þegar fólk verður hrætt eða óöruggt. Kjölfesta samtak­anna er 48 manna aðal­stjórn, það er enginn einn maður sem þarna ræður. Hlutverk stjórnar er að gæta hagmuna samtak­anna enda miklar eignir sem þau eiga og vernda alla þá þekkingu sem þarna má finna, meðal annars hjá þeim sem þarna starfa og þeim sem eru þarna hættir,“ segir Þórarinn.

„Ég geri mér ekki grein fyrir því af hverju er verið að mála mig sem vonda kallinn. Þarna hef ég unnið frá því ég varð til sem læknir og ég vissi ekki betur en að þarna væri allt í lukkunnar velstandi. Ég er ósköp venju­legur maður og treysti á það sjálfur að ég sé góð manneskja. Það verður ekki af stjórnar­formanninum tekið að hann var kosinn þarna inn og situr þar í fullu umboði aðal­stjórnar. Mér finnst verið að gera lítið úr fólki þegar gefið er í skyn að honum sé fjarstýrt fram og til baka. Arnþór er ekki minn leppur, hann er sjálf­stæður maður með mikla reynslu úr lífinu og í starfi.“

Hryggur yfir stöðunni

Aðspurður hafnar Þórarinn því alfarið að bakvið tjöldin beiti hann áhrifum sínum til að sverta starf núverandi stjórn­enda Vogs. Hann gefur ekki mikið fyrir umræðu um að hann fari fram af karlrembu á stjórnar­fundum. „Ég get ekki svarað þessu öðruvísi en að ég hef ekkert verið þarna á þessari starfstöð. Ég er kominn út úr þessu öllu og sit ekki í framkvæmda­stjórn. Ég er hryggur yfir því hvernig staðan er. Ég á enga sök á því og hef hvergi komið þarna nærri á nokkurn hátt enda ekki með neitt umboð til þess. Fólk verður bara að axla sína ábyrgð í þessu,“ segir Þórarinn og ítrekar að hjá SÁÁ séu tveir stjórn­endur að heilbrigðis­stofnunum samtak­anna.

„Fólk verður bara að axla sína ábyrgð í þessu“

„Það er annars vegar framkvæmda­stjórn SÁÁ sem leggur til gríðarlegt fjármagn og starfs­mennirnir eru ekki fulltrúar þess fjármagns. Svo eru það yfirmenn og milli­stjórnendur, þar er heldur enginn einn maður sem ber ábyrgð á öllu saman. Núna verður stjórn­skipulag samtak­anna, framkvæmda­stjórnin og starfs­fólkið, að takast á við þetta og leysa þetta.“

Ingunn Hans­dóttir, yfir­sál­fræð­ingur hjá SÁÁ, var nýlega sagt upp starfi.

Leitt að vera leiksoppur í refskák

„Ég hef það gott en mér var rosalega brugðið. Þessu átti ég alls ekki von á og mér finnst það rosalega leitt að vera leik­soppur í svona refskák,“ segir Ingunn Hans­dóttir, yfir­sálfræðingur hjá SÁÁ, þegar hún er spurð um líðan sína eftir að hafa nýlega verið sagt upp starfi sínu. Hún segist gífurlega ánægð með meðbyrinn síðustu daga og segir augljóst að mjög margir vilji halda í sem bestu þjónustu fyrir fólk með fíkni­sjúkdóma.

Kerfisvilla

Ingunn segir sálfræðinga því miður hafa átt stundum erfitt uppdráttar innan heilbrigðis­stofnanna þar sem margar fagstéttir koma saman. Sem betur fer séu viðhorfin að breytast. „Þetta kalla ég einfald­lega kerfis­villu, að nýta ekki fagþekkingu sálfræðinga í heilbrigðis­þjónustu í miklu meiri mæli en gert er í dag. Við teljum okkur vera grunnstoð í heilbrigðis­kerfinu á SÁÁ og sálfræði­þjónustan hefur of lengi þurft að dúsa úti í horni,“ segir Ingunn og leggur áherslu á að það sé krafa samfélagsins að heilbrigðis­meðferðir séu færðar í nútímalegt horf með þver­faglegum teymum.

„Við vorum á fleygi­ferð í því að breyta hlutunum til enn betri vegar. Það er alltaf hægt að bæta og við höfum verið eins og ferskir vindar inn í þessa starfsemi. Mergur málsins er bara sá að framkvæmda­stjórn SÁÁ hefur verið að grípa fram fyrir hendurnar á Valgerði, meðal annars með ákvörðun sinni um hvaða stétt það er sem eigi að koma að meðferðinni. Það er vanda­málið og togsteitan í hnotskurn. Það er ekki hægt að taka ákvarðanir með þessum hætti.“

„Mergur máls­ins er bara sá að fram­kvæmda­stjórn SÁÁ hefur verið að grípa fram fyrir hend­urnar á Valgerði“

Óttast breytingar

Aðspurð telur Ingunn deilurnar nú snúa að því að hinir eldri óttist breytingar og það sem hún kallar ferska vinda. Hún bendir á að það hafi einmitt verið Þórarinn sem réði hana til starfa en fyrir einhverja hluta sakir hafi hann breytt um skoðun á leiðinni.

„Það er alltaf erfitt að stíga inn í breytingar og fólk er oft tortryggið þegar gera á hluti með breyttum hætti. Það má segja að hinir eldri séu hræddir við ferska vinda. Þórarinn treysti mér fyrir þessu í upphafi en síðan hefur það verið alveg ljóst að honum hefur ekki fundist þetta vera leiðin í rétta átt. Hann hafði væntingar um að hlutirnir eða áherslur yrðu öðruvísi,“ segir Ingunn og viðurkennir að hún hafi þurft að sæta ítrekuðum aðfinnslum Þórarins undan­farin misseri. Hún veltir fyrir sér hvort þessar deilur séu mögulega tilkomnar vegna þess að karlar upplifi ógn af sterku kvenna­teymi stjórn­enda Vogs. „Ég held að það sé hluti af vanda­málinu. Það hefur alltaf verið unnið gott starf hjá SÁÁ en núna voru komnir nýir stjórn­endur sem hafa viljað þróa hluti áfram í góða átt með hagsmuni fíkni­sjúklinga að leiðar­ljósi. Okkar heitasta ósk er að fá starfs­frið til þess.“

Úti í miðri á

Innan SÁÁ hefur verið boðið upp á þriggja ára starfsnám vímuefna­ráðgjafa og því starfi hefur Ingunn stýrt. Hún segir námið nú í uppnámi ásamt sálfræði­þjónustu til barna og aðstand­enda fíkni­sjúklinga. „Það er nú fólk í miðju námi sem ekki veit hvað gerist næst og er statt úti í miðri á. Þarna höfum við sálfræðingarnir komið mikið að málum í námi og fræðslu,“ segir Ingunn sem vonast til að framkvæmda­stjórn SÁÁ sjái að sér fljótlega.

„Það er augljós­lega verið að reyna koma höggi á Valgerði og mér finnst það ekki góð stjórnun að segja upp einum af yfir­mönnum faglegrar meðferðar á svona krísu­stundu. Ég skil að það vanti peninga en þetta er bara gert til að grafa undan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu