Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Bestu suðurkóresku húðvörurnar

Rík hefð fyrir húðumhirðu sem hefur skilað sér í mjög vel upplýstum neytenda­hópi

Virkar suðurkóresk húðumhirða?
Virkar suð­ur­kóresk húð­um­hirða? Mynd: Unsplash/Benjamin Ngo

Allt frá snigla­slími til býflugna­peptíða, þá segir samkvæmt Vogue British að suður­kóresku húðvörumerkin blandi saman hefð­bundnum hráefnum og nýjustu tækni. „Í Suður-Kóreu er löng og rík hefð fyrir húðumhirðu sem hefur skilað sér í mjög vel upplýstum neytenda­hópi,“ segir Alicia Yoon, stofnandi Peach and Lily húðvörumerkisins. Þessi eftir­spurn hefur byggt upp harða samkeppni og gert Suður-Kóreu að alþjóðlegri miðstöð fyrir nýsköpun í húðvörum.

Hvort sem markmiðið er að vinna gegn lita­breytingum, roða eða einfald­lega að viðhalda svokölluðum „gloss húðar“ ljóma (e. glass skin), þá eru K-beauty vörurnar svo áhrifa­ríkar að viðskipta­vinir um allan heim fá ekki nóg.

Virkar suðurkóresk húðumhirða?

Ólíkt sumum vestrænum húðmeðferðum, sem snúast um að laga það sem þegar er skemmt, þá leggur suður­kóresk húðumhirða áherslu á forvarnir. „Suður­kóresk húðumhirða er form af sjálfs­umhyggju, byggð á þeirri staðreynd að húðin er stærsta líffæri líkamans,“ segir Yoon. „Áherslan er á langtíma­árangur í stað skyndi­lausna yfir nótt.“ Þess vegna eru suður­kóreskar aðferðir mun mildari fyrir húðina en þær vestrænu og er rakagjöf talin einn af lykil­þáttunum.

„Suður­kóresk snyrti­vörumerki nota mild hráefni og einblína meira á viðkvæmar húðgerðir,“ bætir K-beauty sérfræðingurinn Elisa Lee við.

Af hverju er suðurkóresk húðumhirða svona góð?

„K-beauty er rótgróið í heild­rænni vellíðan,“ segir Sarah Oh, sérfræðingur. „Húðvörur sem eru góðar eiga líka að láta þér líða vel!“

„Það er líka mikil áhersla á nýsköpun,“ bætir Coco Park við. „Suður­kóresk húðumhirða er enn svona fimm til sjö árum á undan vestrænum vörum.“ Landið er þekkt fyrir ítarlega margra skrefa rútínu, svo sem 10-skrefa rútínuna.

Hver eru bestu kóresku vörumerkin?

Það eru til yfir 20.000 suður­kóresk húðvörumerki. Stærstu vöru­merkin tilheyra risa­fyrir­tækjunum LG H&H og Amore Pacific. Vinsældir ráðast af húðgerð og smekk. „Það eru til klassísk merki eins og Missha sem hafa verið lengi til og höfða til eldri hópa,“ segir Park. „En það eru líka yngri og ódýrari merki eins og Cosrx, Axis-Y eða Etude House.“ Önnur vinsæl merki eru Laneige, Banila Co, Dr Jart, Round Lab, Aestura og Abib.

Samkvæmt Vogue eru þetta bestu suðurkóresku húðvörurnar:

  • Hreinsun: Haruharu Wonder Black Rice Gel, Sulwhasoo Gentle Oil, Arencia Rice Mochi, og COSRX AC Foam.
  • Skrúbbar: Medicube Zero Pore Pads og Dr. Jart+ Pore Remedy Serum.
  • Andlits­vatn/Kjarnar: COSRX Snail 96 Mucin og Laneige Cream Skin Toner.
  • Serúm/Ampúlur: Innisfree Green Tea, Skin1004 Centella, iUNIK Beta-Glucan, og Anua Niacinamide.
  • Augnkrem: Erborian Skin Therapy og Haruharu Wonder Bakuchiol.
  • Rakakrem: COSRX Snail 92, Dr. Jart+ Ceramidin, Etude Soon Jung, og CENTELLIAN 24 Madeca.
  • Maskar: Medicube Collagen Mask og Mediheal Madecassoside.
  • Sólvarnir: Beauty Of Joseon Relief Sun og Thank You Farmer Water Sun Cream.
  • Húðvörutól: Medicube Age-R Booster Pro.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Gunnar Smári lýsir baráttunni við veikindin

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði