Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ásgeir vill Dag og Snorra: „Þeir fara inn í lokað herbergi og útkljá það, ég hef engar áhyggjur“

Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Ásgeir Örn Hall­gríms­son.

Fyrr­verandi lands­liðsmaður í handbolta og sérfræðingur RÚV, Ásgeir Örn Hallgrímsson, vill að Dagur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson taki saman að sér að þjálfa karla­landsliðið í handbolta.

Eins og ljóst er komst Ísland í efsta sæti undan­riðilsins fyrir EM 2024 með sigri á Tékkum í gær.

Skiptir það mjög miklu máli að vinna riðilinn; það tryggir íslenska liðinu efsta styrkleika­flokk í loka­keppninni, að öðrum kosti er þriðji styrkleika­flokkur niður­staðan, og þar er töluverður munur á.

Dagur Sig­urðs­son.

„Við ætlum okkur stóra hluti á EM og við ætlum okkur að fara á Ólympíu­leikana og þetta er bara eitt lítið skref í áttina að því,“ segir Ásgeir Örn í samtali við ruv.is.

Ekki hefur enn verið gengið frá ráðningu nýs landsliðs­þjálfara; Gunnar Magnússon og Ágúst Þór Jóhannsson stýra liðinu út undan­keppnina, eftir að Guðmundur Guðmundsson hætti störfum nýverið.

Ásgeiri Erni líst vel á að Dagur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson taki við liðinu í sameiningu.

Snorri Steinn Guð­jóns­son.

„Ég var mjög sammála því að Gunni og Gústi tækju við þessu með þessum stutta fyrirvara. Það hefur bara sýnt sig á þessari síðustu viku að þetta er rosa brothætt, það má lítið út af bregða. Mér líst betur og betur á þá hugmynd að það verði hjólað eins hratt í það og hægt er að ráða framtíðar­þjálfara. Ég held að það verði að fara að gerast á næstu vikum.

Við höfum heyrt þessi nöfn, Snorri er búinn að gera frábæra hluti hér heima. Hann er með mjög nútíma­legan og góðan handbolta sem ég held að myndi henta lands­liðinu mjög vel. Hann tikkar í ansi mörg box hvað varðar þjálfara­málin. Eins Dagur, það þarf ekkert að segja neinum það en hann er stórkost­legur þjálfari, búinn að vinna medalíur og svona.

Fyrir mér eru þessi tvö stærstu nöfn sem ættu að vera efst á blaði fyrir mér. Best væri að fá þá báða bara og þeir myndu þá bara vega hvorn annan upp. Það er eitthvað sem menn mættu alveg spá í,“ segir Ásgeir Örn sem hefur litlar áhyggjur af því að þeir myndu ekki ná að leysa möguleg og ómöguleg ágreiningsmál.

„Þeir fara bara inn í lokað herbergi og útkljá það, ég hef engar áhyggjur af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim