Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Fegurð, glæsileiki og sérstaða

Þeir eru hann­aðir til að fanga athygli okkar út frá feg­urð, glæsi­leika og sér­stöðu. Þeir eru bíl­arnir sem við fáum aldrei að aka, ein­fald­lega vegna þess að suma þeira er ekki hægt að setja í gang.

|||||
|||||

Bíla­sýn­ingin í Genf er einn stærsti við­burð­ur­inn í bíla­daga­tali Evrópu. Þar koma saman nær allir bíla­fram­leið­endur heims og kynna bæði ný módel og nýja bíla, en einnig nýjar hug­myndir sem gefa vís­bend­ingar um í hvaða átt bíla­iðn­að­ur­inn er að þró­ast.

Flesta þessa bíla eigum við eftir að sjá á göt­unum eftir nokkur ár og jafn­vel keyra þá sjálf. En svo eru það hinir bíl­arnir. Þessir sem fram­leið­endur nota til að skapa sér sér­stöðu og fanga athygli gesta og blaða­manna með útliti og nýj­unga­girni, sem og alveg fárán­lega kraft­miklum vélum og  enn fárán­legri verð­miðum.

Þetta eru frum­gerðir og hug­mynda­bílar, fram­leiddir í örfáum ein­tökum eða jafn­vel stakir. Flestir þeirra kom­ast aldrei á fram­leiðslu­stig. Sumir þeirra hafa ekki einu sinni vélar.

En þeir vekja engu að síður ávallt mestu athygl­ina og fá okkur til að dreyma. Hér eru smá úrval af þeim sem voru frum­sýndir í Genf í lið­inni viku.

Zenovo TSR-S.

Zenovo TSR-S. Danir eru þekkt­ari fyrir fal­leg hús­gögn og góðan bjór en ofur­bíla. Danski fram­leið­and­inn Zenovo er að breyta þessu og kynnti hann til sög­unnar TSR-S götu-útgáfa af kappakst­urs­bílnum TSR. Ef þú ert hóg­vær þá get­urðu fengið hann í 700 hest­afla útgáfu, en ann­ars er hann 1.177 hest­öfl úr kass­anum. Það þýðir að sam­kvæmt tölum frá Vís­inda­vef háskóla Íslands er ein­ungis hægt að búa til 60 svona bíla með öllum hestum Íslands.

Ástæðan þess að þú munt aldrei keyra þennan bíl: Hann kemst ekki yfir hraða­hindr­anir og þar af leið­andi ekki upp í hest­hús.

Renault EZ-GO.

Renault EZ-GO. Þessi sjálf­keyr­andi raf­magns­bíll frá Renault er meðal fram­úr­stefnu­leg­ustu bíla sýn­ing­ar­innar í ár. Þeim er ætlað að vera leigu­bílar fram­tíð­ar­innar, eða alla veg­anna gefa hug­mynd um hvernig þeir gætu litið út. Hljóð­látir, frá­bært útsýni og hag­kæmni er meðal kosta bíls­ins.

Ástæða þess að þú munt aldrei keyra þennan bíl: Að öllum lík­indum munum við nota svona bíla, eða eitt­hvað í átt við þá, í nálægri fram­tíð. Ef til vill sem hluta af fyr­ir­hug­aðri borg­ar­línu. En þú munt ekki keyra hann. Inter­netið mun keyra hann fyrir þig.

Sin R1 550 hybrid.

Sin R1 550 hybrid. Af hverju að hafa eina vél þegar þú getur haft tvær? Sin er glæ­nýr og afar sér­hæfður bíla­fram­leið­andi, en fyr­ir­tækið var stofnað árið 2012. R1  er í raun þeirra eini bíll, og hér er hægt að fá hann í nýrri tvinn­véla útgáfu. 120 hest­afla raf­vél sér um fram­dekkin og 450 hest­afla vél um aft­ur­dekkin.

Ástæða þess að þú munt aldrei keyra þennan bíl: Þú hefur því ekki efni á honum.

E’mobile Microlino.

E’mobile Microlino. Þessi bíll er full­kom­inn fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið. Þú finnur alltaf stæði, hann er einkar spar­neyt­inn, gengur fyrir raf­magni, ofboðs­lega sætur og ekki dýr! Þetta er algjör sig­ur­veg­ari. Nema það er bara pláss fyrir einn og hann lítur ekki út fyrir að vera góður í rok­inu á Kjal­ar­nesi eða í snjónum í efra-Breið­holt­inu.

Ástæða þess að þú munt aldrei keyra þennan bíl: Það er snjór og rok all­staðar á Íslandi.

Aston Martin Lagonda.

Aston Martin Lagonda. Þessi útgáfa af Lagonda er ekki nýr bíll heldur ný útgáfa, en er án efa einn fal­leg­ast bíll­inn sem til sýnis er á bíla­sýn­ing­unni í Genf. Hann lítur út fyrir að vera beint úr Blade Runner nema hvað tek­ist hefur að bjarga jörð­inni svo hún er orðin græn aftur og vél­mennin eru vinir okkar. Hér mæt­ast fram­tíð og for­tíð á full­kom­inn hátt bæði hvað varðar tækni og útlit.

Ástæða þess að þú munt aldrei keyra þennan bíl: Hann verður aldrei fram­leiddur. Hann er algjör­lega út úr kú er kemur að hag­kvæmni í fram­leiðslu og ber frekar að líta á hann sem lista­verk en bíl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé