Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Systurskip Barkar bætti glænýtt heimsmet: „Við hugsum á svipuðum nótum og landsliðið í handbolta“

Vilhelm í Fuglafirði
Vilhelm í Fugla­firði Mynd: Samherji

Ekki stóð heimsmet Barkar NK, sem hann setti fyrir helgi en í gær bætti Vilhelm Þorsteinsson EA metið. Landaði skip Samherja 3.448 tonnum af loðnu í Fugla­firði í Færeyjum. „Þessi systur­skip eru þau burðarmestu í flotanum, metin falla með öðrum orðum hratt á þessari stærstu loðnu­vertíð um langt árabil,“ segir á vef Samherja.

Samkvæmt Akureyri.net tók rúmlega tuttugu klukku­stundir að dæla úr Vilhelmi Þorsteins­syni í Fugla­firði og sagði Guðmundur Þ. Jónsson, skip­stjóri að Færeyingar hafi verið mjög svo ánægðir með gæði aflans og fitu­innihald.

„Staðan er einfald­lega sú að bræðslurnar á Íslandi hafa ekki undan þegar vel veiðist og þess vegna var stefnan tekin á Færeyjar, siglingin er hátt í þrjú hundruð sjómílur frá miðunum austur af Langanesi. Við fylltum skipið í sjö holum, stærsta holið var 600 tonn og þá drógum við aðeins í eina og hálfa klukku­stund. Annars vorum við oftast að draga í sex til átta klukku­stundir, þannig að þetta gekk allt saman mjög vel, að vísu þurftum við að lóna í um hálfan sólar­hring vegna brælu,“ segir skip­stjórinn á vef fyrir­tækisins. Að sögn Guðmundar er aflanum dælt beint í vinnslu en ekki í tanka eins og tíðkast yfirleitt á Íslandi.

„Nei við erum nú ekkert sérstak­lega að keppa á þessum systur­skipum um Íslands­metin, þetta eru einfald­lega mjög góð og öflug skip með mikla burðar­getu. Það skiptir mestu að koma með gott hráefni að landi og þessi skip eru vel búin á allan hátt. Þannig var meðal­hitinn á hráefninu 2,1 gráða þegar því var dælt til verksmiðjunnar.“

„Við leystum land­festar í Fugla­firði á sjöunda tímanum í morgun og nú er bara að sigla á miðin. Veiðin hefur verið góð undan­farna daga og verður vonandi svo áfram. Það verður væntanlega nokkuð þröngt á miðunum, því norski flotinn er mættur á svæðið. Þetta nýja skip hefur reynst afar vel og það var ánægjulegt að sigla í land með fullfermi. Við hugsum á svipuðum nótum og lands­liðið í handbolta, fókusinn er á næsta túr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ