Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Berserkur hafði í hótunum við lögreglu

Myndin tengist pistlinum ekki beint
Myndin teng­ist pistl­inum ekki beint

Ölvaður einstaklingur var í gærkvöld hand­tekinn þegar hann hafði í hótunum og fór ekki að fyrir­mælum lögreglu. Lögreglu­menn á vettvangi höfðu ekki um annað að velja en að fjarlægja viðkomandi af vettvangi og láta hann gista fanga­geymslur meðan rann af honum.

Nokkuð var um að lögregla þyrfti að sinna útköllum vegna líkams­árása. Þannig var til að mynda tilkynnt um líkams­árás í hverfi 105 í Reykjavík. Lögregla handtók geranda á vettvangi og var hann látinn gista fanga­geymslur. Klukkan hálf átta í gærkvöldi var einnig tilkynnt um líkams­árás í Breið­holti. Flytja þurfti árásar­þola á bráða­móttökuna til aðhlynningar.

Í gærkvöld urðu íbúar í Hlíðunum við Lönguhlíð neðan Miklubrautar varir við blikkandi ljós lögreglu­bíla í dágóða stund og leist hreinlega ekki á blikuna.

Lögregla þurfti undir klukkan níu í gærkvöld að hafa afskipti af ökumanni sem var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þegar lögregla stöðvaði ökumanninn reyndi hann að ljúga til um nafn. Ekki fór það betur en svo hjá viðkomandi en að lögregla komst að því að hann hafði verið sviptur ökuréttindum sínum.

Upp úr klukkan hálf ellefu í gærkvöldi gekk lögregla fram á mann sem var sofandi í bifreið sinni. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að maðurinn var með ólögleg fíkniefni í fórum sínum. Ekki reyndist þörf á að handtaka manninn og var málið afgreitt með vettvangs­skýrslu.

Aðili var hand­tekinn í vesturbæ Reykja­víkur fyrir að hafa í hótunum. Hann var látinn gista fanga­geymslur í nótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu