Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Björn Bjarnason er gestur Guðna: „Mér blöskrar oft þessi harða gagnrýni á landbúnaðinn“

„Við leggjum áherslu á það að bændur séu sjálf­stæðir atvinnu­rekendur og það þarf að halda þannig á að það sé ekki saumað að þeim með einhverjum boðum og bönnum eða þeir settir í einhverja kreppu út af alþjóða­samstarfi. Við komumst að því þegar við fórum að skoða þetta að EES málið var kýlt allt of fast á bændur í staðinn fyrir að gefa þeim þá styrk með því að breyta einhverju hér innanlands og styrkja það. Það þarf að skapa jafnvægi og það er hægt að skapa þetta jafnvægi. Þetta kom allt of snögglega sem högg,“ segir Björn Bjarnason, fyrr­verandi ráðherra í hlðavarpinu Land­búnaðar­ráðherra Mannlífs, sem Guðni Ágústsson heldur úti.

Kristján Þór Júlíusson, þá sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, skipaði nefnd með Björn í farar­broddi ásamt Hlédísi Sveins­dóttur, Sigurgeir Þorgeirs­syni og Bryndísi Eiríks­dóttur til þess að vinna heild­stætt plagg sem inni­heldur tillögur og drög að aðgerða­áætlun um ræktun Íslands og landbúnað sem hlaut titilinn ,,Ræktum Ísland!” en það hefur ratað inn í stjórnar­sáttmála núverandi ríkis­stjórnar.

„Þetta eru nítján kaflar sem snúa að land­búnaði sem við leggjum til grund­vallar. Svo tökum við tíu út úr þegar við gerðum tillöguna um stefnuna og svo koma þessi framkvæmda­atriði. Ef ég á að segja þér hvað kom mér mest á óvart þegar ég fór að kynnast þessu var það hvað hversu land­búnaðurinn er háþróaður að mörgu leyti en bilið kannski á milli þess sem glímt er við sem vandamál og þeirra tækifæra sem men hafa til þess að sækja fram er of breytt. Það þarf að lyfta þeim sem glíma við erfiðustu málin, það þarf að lyfta þeim upp á nýtt stig. Tækifærin eru alveg ótrúlega mikil og gróskan er alveg gífurlega mikil. Nýsköpunar­þráin er mjög mögnuð.“

Björn telur að yfir­vofandi orku­skortur sé engin tilviljum því menn hafi verið tregir til að virkja undan­farin ár og ekki verði hægt að leysa málin með því að slökkva ljósin á einhverjum ákveðnum tímum. Hann lítur svo á að til að vera samkeppnishæf þjóð þurfum við að nýta þessu grænu orku.

Björn vill sjá aukningu lífrænnar ræktunnar upp í 9-10% og til að ná því þurfi að beina stuðningi við bændur inn á þær brautir. Það þarf að komast að sameiginlegri niður­stöðum um lífræna ræktun en grund­völlur að henni er að nota búfjár­áburð frekar en innfluttan áburð og nota áburð sem verður til hjá okkur sjálfum án þess að hann sé tilbúinn. Með þessum hætti getum við framleitt eitthvað sem er einstakt í heiminum.

Björn sér óteljandi tækifæri í markaðs­setningu á landbúnaðar­afurðum „ég hef heyrt viðtöl við bændur sem segja að Facebook og þessar síður hafi þeim gert kleift að selja vörur sem þeir hafi aldrei getað gert áður þannig að ég held að tækifærin séu óteljandi.“

Að lokum segir Björn vona að það gefist færi á því að ná þeirri sátt því.

„Mér blöskrar oft þessi harða gagnrýni á land­búnaðinn hérna eins og hann sé einhver þurfalingur og hann hafi einhverja sérstöðu í heiminum að við séum með einhvern landbúnað sem eigi meira undir högg að sækja heldur en eðlilegt sé. Allsstaðar í heiminum er litið á landbúnað sem grundvöll heilbrigðs samfélags og það er lögð rækt við að styðja hann og efla. Það er engin þjóð sem gengur þannig fram að hún vilji gera út af við sinn landbúnað“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt