Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Allt á suðupunkti í Silfrinu

Hiti í sjónvarpssal

Bergsteinn þurfti að skerast í leikinn: „Leyfum fólki að klára“
Berg­steinn þurfti að sker­ast í leik­inn: „Leyfum fólki að klára“ Mynd: Facebook/Bergsteinn

Heitar umræður sköpuðust í sjónvarpssal Silfursins á RÚV þegar formenn stjórn­mála­flokkanna mættust til að gera upp niður­stöður þjóðar­atkvæða­greiðslunnar. Bergsteinn Sigurðsson, umsjónar­maður Silfursins, þurfti að biðja formenn um að hemja sig þegar hitnaði í kolunum.

Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið á ný. Í kjölfarið flaug neisti á milli formanna þegar rætt var um framtíð EES-samningsins og hina umdeildu bókun 35.

Í þættinum mættust þær Kristrún Frosta­dóttir forsætis­ráðherra, Guðrún Hafsteins­dóttir formaður Sjálfstæðis­flokksins, Lilja D. Alfreðs­dóttir formaður Framsóknar­flokksins, Inga Sæland mennta- og barnamála­ráðherra, Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.

Kom ETS-málunum í skjól til 2030

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, utan­ríkis­ráðherra og formaður Viðreisnar, hóf umræðuna á því að ræða mikilvægi hagsmuna­gæslu gagnvart Evrópu og benti á að hún væri búin að koma ETS-málinu, losunar­kröfum ESB á flug­samgöngur, í skjól til ársins 2030. Sneri hún máli sínu því næst að innleiðingu á bókun 35 við EES-samninginn, sem fjallar um forgang EES-reglna gagnvart lands­lögum ef árekstur verður.Þorgerður varpaði boltanum yfir á andstæðinga ESB-aðildar og sagði:

„Kannski sé það best að annaðhvort Sigmundur eða Guðrún verði fyrstu flutnings­menn bókunar 35 til að sýna einarða samstöðu með EES-samningnum.“

Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni, formanni Miðflokksins, var augljós­lega ekki skemmt yfir þessu útspili utan­ríkis­ráðherra. Hann greip fram í fyrir henni í miðri ræðu og spurði undrandi:

„Heyrðu, þú ert nú varla að fara að keyra á bókun 35 núna, þvert á niður­stöðu þjóðar­atkvæða­greiðslunnar? Það er ekki það sem fólk var að kalla eftir.“

Óttaðist að stuðningur við EES væri orðin tóm

Þorgerður Katrín svaraði Sigmundi fullum hálsi og gaf lítið fyrir gagn­rýnina. Hún sagði andstöðuna sýna nákvæmlega það sem hana hafi grunað um málflutning þeirra sem vilja standa fyrir utan ESB en nýta EES-samninginn:

„Þetta er það sem ég óttaðist, að þetta hafi bara verið orðin tóm. Svo gott að skýla sig á bak við EES-samninginn. Nú á að fara að standa vörð um EES-samninginn, þá eru menn ekki tilbúnir í það. Mér finnst það umhugsunar­efni.“

Þorgerður bætti því við að Ísland þyrfti að herða hagsmuna­gæslu sína í alþjóð­legu samhengi og horfa til annarra ríkja utan sambandsins. „Við þurfum að gera eins og Kanada er að gera. Kanada er að reyna að komast í skjól með því að fara í samninga­viðræður við ESB.“

Uppþot í salnum

Við þessi orð fauk hressilega í formenn stjórnar­andstöðu­flokkanna sem sögðust ekki ætla að samþykkja slíka nálgun á evrópska löggjöf. Sigmundur Davíð hrópaði fram í:

„Við stöndum ekki vörð um EES-samninginn með þessum hætti!“

Bergsteinn Sigurðsson, stjórn­andi Silfursins, þurfti að skerast í leikinn og reyna að róa mann­skapinn áður en umræðan fór algjör­lega úr böndunum:

„Leyfum fólki að klára.

Ég verð að halda þessum þætti áfram. Vilji þið sýna sjálfum ykkur og fólki heima þá virðingu að gefa mér orðið og ég skal svo útdeila því eftir því sem umræðan heldur áfram.“

Þorgerður tók aftur til máls og ítrekaði loks að verndun EES-samningsins og sjálfstæð hagsmuna­gæsla væri stærsta verkefnið sem blasti við íslenskri pólitík nú þegar dyrunum að fullri aðild hefði verið lokað.

Ljóst er að þrátt fyrir afgerandi niður­stöðu þjóðarinnar úr kjör­klefanum um helgina er Evrópu­málinu og deilunum um fullveldi landsins fjarri því lokið á hinu pólitíska sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra