Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Dóra og Sævar eignuðust son – „Velkominn í heiminn elsku barnið mitt“

Mynd / Hákon Davíð
Mynd / Hákon Davíð

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borgar­full­trúi og odd­viti Pírata til­kynnti fæðingu barns hennar og Sæ­vars Ólafs­sonar íþrótta­fræðings á Facebook í gær. Eignuðust þau dreng, fimm dögum fyrir settan dag og er Dóra í skýjunum. ,,Hann er svo undur­fal­legur og bjartur og lýsir upp hjörtun okkar. Ég hef aldrei upp­lifað slíka ást,“ skrifar Dóra um erfingjann í fallegum pistli. Við óskum Dóru og Sævari innilega til hamingju með soninn, pistilinn má lesa í heild hér að neðan.

„Baráttu­barnið okkar er fætt 

Í dag 1. maí er settur dagur drengsins okkar Sævars, sem er baráttu­barn í víðum skilningi. En hann lét sjá sig fyrir fimm dögum síðan, á þriðjudag. Hann var 16,5 merkur og 52 cm og litli ljóns­unginn fæddist með dökkan makka eins og mamma sín. Hann er svo undur­fallegur og bjartur og lýsir upp hjörtun okkar. Ég hef aldrei upplifað slíka ást.

Koma hans í heiminn og fyrstu dagar hafa þó reynst okkur fjöl­skyldunni krefjandi. Áætluð heima­fæðing endaði uppi á Land­spítala í tölu­verðum hasar og aðeins tveggja daga gamlan þurfti að leggja hann inn á vökudeild Barna­spítalans vegna slapp­leika. Allt hefur þó gengið upp og við fjöl­skyldan fengum að fara heim í dag, á settum degi. Við njótum þess að vera saman og kynnast. Hann setur allt lífið vissulega í alveg nýtt samhengi.

Í dag á 1. maí er líka eins og við vitum öll baráttu­dagur vinnandi fólks. Mér hefur alltaf þótt svo vænt um þennan mikilvæga dag. Barátta launa­fólks um bætt kaup, kjör og vinnu­aðstæður og fyrir því að hlustað sé á raddir verka­fólks og vinnandi fólks hefur skipt sköpum þegar kemur að eflingu lífsgæða okkar allra. Ég brenn fyrir því að þessar raddir fái að heyrast og að á þær sé hlustað og að mikilvæg vinna í þágu samfélagsins sé metin að verð­leikum.

Í því samhengi vil ég nefna botnlausa virðingu mína fyrir vinnu og mikilvægi heilbrigðis­starfsfólks í ljósi nýliðinnar reynslu okkar. Heilbrigðis­starfsfólk er okkur til halds og trausts á okkar bestu og erfiðustu stundum og stendur vörð um okkar allra dýrmætasta og hefur sannarlega gert það í okkar tilfelli. Ég vil þakka ljós­mæðrum, hjúkrunar­fræðingum, fæðingar­læknum og barna­læknum bæði Bjarkarinnar og Land­spítala frá innstu hjarta­rótum fyrir að grípa mig og fjöl­skylduna mína á ögur­stundu. Fagleg og styrk hjálpar­hönd þeirra í bland við botnlausa umhyggju og hlýju sem við höfum hlotið síðustu daga frá þessu yndislega fólki gerir mig klökka.

Þau hafa ekki bara tryggt okkur fjöl­skyldunni viðeigandi og rétta meðhöndlun og meðferð sem hefur lyft okkur yfir þessa erfiðu hjalla heldur líka sáluhjálp, ráðgjöf og öxl til að gráta á. Undursamlegar ljósmæður og hjúkrunar­fræðingar hafa bæði fyrir, undir og eftir fæðingu og á meðan dvöl okkar á vökudeild stóð hlustað á mig, ráðlagt mér, sýnt mér enda­lausan skilning og stuðning og hafa bókstaf­lega gripið mig í sinn faðm þegar tárin hafa streymt niður vangana í rosalegasta tilfinninga­rússíbana­kokteil lífs míns.

Borið hefur á þungri umræðu um fæðingar og heilbrigðis­starfsfólk síðustu mánuði en ég vil segja að mín erfiða reynsla er þó böðuð ljóma þessa fólks. Þeirra visku og hjarta­gæsku. Ég verð þessu fólki ævinlega þakklát. Þetta fólk á allt gott skilið. Það á skilið miklu meira en það fær. Gleði­legan 1. maí. Baráttan lifir. Velkominn í heiminn elsku barnið mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027