Hrottafengin hnífaárás í Dyflinni í hádeginu í gær, olli óeirðum í írslu höfuðborginni, þar sem verslanir voru rændar, bílar brenndir og árásir gerðar á lögreglumenn.
Þrjú ung börn eru meðal fimm sem slösuðust í sjokkerandi árás á Parnell-torgi, norður af miðborg Dyflinnar, rétt eftir 13:30 í gær. Maður á sextugsaldri, er nú í haldi írsku Garda-lögreglunni, grunaður um verknaðinn en gert var að sárum hans á vettvangi glæpsins.
Yfirvöld segja fimm manneskju hafi særst í hnífaárásinni, en af þremur börnum sem slösuðust, hafa tvö verið flutt á sjúkrahús. Fimm ára stúlka og kona á fimmtugsaldri eru í lífshættu. Ekki er enn vitað um ástæður árásarinnar.
Ofbeldisalda braust út í írsku höfuðborginni í gærkvöldi en óeirðarseggirnir kveiktu í lögreglubíl, rændu verslanir og réðust á fjöldi lögreglumanna. Yfirmaður Garda-lögreglunnar sagði að óeirðirnar væru „svívirðilegar“ og drifnar áfram af „brjáluðum óeirðarseggum“ sem aðhylltust „hugmyndafræði öfga-hægrisins,“ að sögn Drew Harris lögreglustjóra.
Forsætisráðherra Írlands, Micheál Martin hrósar brasilískum matarsendli sem tæklaði árásarmanninn niður í miðri hnífaárás. Caio Benicio var staddur í vinnu sinni þegar hann varð vitni að árásinni við Parnell-Torgið og stöðvaði manninn.
Martin segir að þáttur hans „mætti ekki gleymast“ og sagði að hann hefði líklega bjargað öðrum börnum frá hnífsstungum. „Við sáum hrottalega og ofbeldisfulla árás á börn og fullorðna, við hugsum til þeirra, og við hugsum einnig til matarsendilsins sem kom að og bjargaði málunum, jafnvel fleiri börnum,“ sagði forsætisráðherrann.
The Mirror sagði frá málinu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir