Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Noregur stofnar formlega til stjórnmálasambands við Palestínu

Nýskip­aður sendi­herra Palest­ínu afhenti Haraldi Nor­egs­kon­ungi trún­að­ar­bréf.

Haraldur Noregskonungur og sendiherra Palestínu.
Haraldur Nor­egs­kon­ungur og sendi­herra Palest­ínu. Hans hátign tekur á móti trún­að­ar­bréfum Marie Sedin. Mynd: Samfélagsmiðillinn X

Norsk yfir­völd til­kynntu á fimmtu­dag að landið hafi nú form­lega stofnað stjórn­mála­sam­band við Palest­ínu, sem markar mik­il­vægt skref hjá Norð­ur­landa­þjóð­inni á sama tíma og Ísrael heldur áfram grimmi­legu stríði sínu gegn Gaza.

Til­kynn­ingin fór fram sam­hliða form­legri afhend­ingu trún­að­ar­bréfa nýskip­aðs sendi­herra Palest­ínu í Noregi, Marie Sedin.

Við hátíð­lega athöfn í kon­ungs­höll­inni afhenti Sedin trún­að­ar­bréf sín hans hátign Haraldi Nor­egs­kon­ungi.

Formleg við­ur­kenn­ing Noregs á Palest­ínu mun opna dyr fyrir sendi­ráð í Osló og er mik­il­vægt vin­áttu­tákn milli þjóð­anna.

Með Noregi hafa nú 13 Evr­ópu­ríki form­lega við­ur­kennt Palest­ínu sem full­valda ríki, auk þess sem 148 af 193 aðild­ar­ríkjum Sam­ein­uðu þjóð­anna hafa einnig gert slíkt hið sama. Ísland er eitt þess­ara ríkja.

Stuðn­ingur við sjálf­stæði Palest­ínu

Noregur ákvað að við­ur­kenna Palest­ínu sem ríki 22. maí í fyrra, þegar Ísrael jók árásir sínar á Gaza og drap tug­þús­undir Palest­ínu­manna.

Norska rík­is­stjórnin hefur ítrekað lýst því yfir að Palest­ínu­menn eigi rétt á sjálf­stæði og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti.

Noregur styður tveggja ríkja lausn, þar sem bæði Ísraelar og Palest­ínu­menn fái að lifa í friði í eigin ríkjum.

Síðan í októ­ber 2023 hefur Ísrael drepið yfir 51.200 Palest­ínu­menn í stríði sínu gegn Gaza og særð hund­ruð þús­unda til við­bótar.

Ísrael stendur nú frammi fyrir þjóð­ar­morðs­máli fyrir Alþjóða­dóm­stólnum (ICJ) vegna hern­að­ar­að­gerða sinna á svæð­inu.

Alþjóð­legi saka­mála­dóm­stóll­inn (ICC) gaf einnig út hand­töku­skipunir í nóv­em­ber síð­ast­liðnum á hendur Benjamín Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, og fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra Yoav Gallant, vegna stríðs­glæpa og glæpa gegn mann­kyn­inu í Gaza.

Noregur varð fyrsta Evr­ópu­ríkið sem lýsti því yfir opin­ber­lega að það myndi hand­taka Net­anyahu og Gallant ef þeir kæmu til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé