Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hraðskáksmót til minningar um Hrafn Jökuls haldið í dag – 100.000 krónur í fyrstu verðlaun

Í dag verður haldið hrað­skákmót til minningar um Hrafn Jökulsson, skák­frömuðar og fyrrum fjölmiðla­manns sem lést nýverið eftir erfiða baráttu við krabba­mein.

Eftir­farandi er frétta­tilkynning frá móts­höldurum:

Í dag, miðvikudaginn 12.október kl. 16.00 verður haldið stór­glæsilegt hrað­skákmót í Norður­turni Smára­lindar. Rými verður fyrir 100 manns og verð­launin verða stór­glæsileg, 100.000 fyrir fyrsta sæti, 80.000 fyrir annað sæti og 20.000 fyrir þriðja sætið auk lítilla verðlauna í kvenna­flokki, barna og unglinga­flokki og fyrir 60 ára og eldri. Þátttöku­gjald er 2000 kr fyrir 18 ára og eldri en frítt fyrir börn og unglinga.

Mótið verður haldið til minningar um Hrafn Jökulsson, hins mikla skákfrömuðs og athafna­manns sem lést þann 17.september eftir baráttu við krabba­mein. Það verður posi á staðnum þar sem fólk getur styrkt börn Hrafns með beinum hætti auk þess sem ágóði mótsins eftir kostnað rennur til þeirra. Íslandsmót skák­félaga verður haldið um helgina svo þetta verður góð upphitun fyrir þá sem hyggjast taka þátt í því. Mótið fer fram í Norður­turni Smára­lindar fyrir framan XO sem er aðal­styrktar­aðili mótsins en auk þeirra styrkja mörg fyrirtæki í Smáralind og nágrenni mótið með minni áheitum.Tefldar verða 5 umferðir með 3 mínútur á keppanda en svo bætast við 2 sekúndur á hvern leik. Ef margir verða jafnir efstir verður svo bráðabani til að útkljá sigurvegara.Reiknað er með góðri stemningu og sterku og spennandi móti til að heiðra minningu Hrafns. Hann var einmitt gríðar­lega duglegur að halda mót sem þessi og þá gjarnan í stærri kantinum. Hann sá alltaf til þess að leik­gleðin og dreng­skapurinn væri í fyrirrúmi svo að skák­listin fengi að njóta sín sem best. Eitt hans helsta hugðar­efni í gegnum æviskeiðið var einmitt að efla skákina og að auka vinsældir hennar, bæði hérlendis og víðar. Hægt er að skrá sig í gegnum hlekk á netinu en það verður rými fyrir 100 manns svo það verður líka opið fyrir skráningar á mótstað á meðan pláss leyfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim