Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

„Listafólkið okkar hefur vandað sig við að strjúka þessum ketti rétt og fá kattahlandið í andlitið“

Jakob Bjarnar Grétarsson.
Jakob Bjarnar Grét­ars­son.

Jakob Bjarnar Grétarsson, blaða­maður á Vísi, segir að íslenskir listamenn geti sjálfum sér um kennt fyrir harðan dóm Nínu Hjálmars­dóttur sem birtist á RÚV. Nína slátraði söng­leiknum Sem á himni, sem er sýndur í Þjóð­leikhúsinu, og sagði mikla fordóma gagnvart fötluðum birtast í verkinu. Meðal annars er fatlaður maður látinn pissa á sig, áhorf­endum til gamans.

Sjá einnig: RÚV slátrar leikriti í Þjóð­leikhúsinu: „Niður­lægir minnihluta­hópa og gerir lítið úr lands­byggðinni“

Jakob telur gagn­rýnina vera rétt­trúnað af verstu gerð. „Skemmtilegt, eða þannig. Það verður að segjast að lista- og menningar­fólk hefur galopnað dyrnar fyrir einmitt þessari nálgun. Það hefur á öllum póstum lagt sig í framkróka við að mála sig upp sem bókstafs­trúar­fólk í rétt­trúnaði. Aldrei ljáð máls á öðru og brugðist ókvæða við þegar á hefur verið bent að það sé ekki listarinnar að draga einhverja ismavagna,“ segir Jakob.

Hann segir listamenn hafa hingað til stutt þessa stefnu. „Að ef ekki sé túlkunar­rými þá sé um eitthvað allt annað en list að ræða. En, nei. Lista­fólkið okkar hefur vandað sig við að strjúka þessum ketti rétt og fá katta­hlandið í andlitið sjálf. En þannig virkar þetta nú, og maður myndi segja mátulegt á blessað fólkið ef fjöreggið listir og menning væri einkamál þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana