Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sparkaði í kvið ófrískrar tengdadóttur sinnar: „Er ekki best að enda þetta eitt fyrir allt?“

„Ég hef þagað um þetta síðan apríl 2021. Ég hef einu sinni sagt part úr þessari reynslu undir nafnleynd. En mig langar að skila skömminni og meira segja koma undir nafni og deila því þegar fyrrum tengda­faðir minn réðst á mig og reyndi að eyða ófæddu barni mínu.“ Svona byrjar frásögn konu á Facebook í dag. Konan gaf Mannlíf góðfúslegt leyfi til að fjalla um færsluna.

Dauðadrukkinn tengdafaðir

Í færslunni lýsir konan því er tengda­faðir hennar hringdi í barns­föður hennar fyrir tveimur árum en hún segir hann hafa verið mjög ölvaðan. Hafi hún beðið barns­föður sinn að tala ekki við hann í þessu ástandi en hann hafi ekki orðið við þeirri beiðni. Sagðist konan hafa heyrt þáverandi tengda­föður sinn segja miður fallega hluti í símann og sagt barns­föður sínum að hún vildi ekki hlusta á þetta lengur og að hún ætlaði til vinkonu sinnar. Það skal tekið fram að konan var þarna komin 14 vikur á leið í meðgöngu. Þremur tímum síðar segist hún hafa hringt í barns­föður sinn til að segja honum að hún vilji ekki koma aftur heim í þessar aðstæður, þar sem hún var ófrísk. „Hans viðbrögð var að slökkva á símanum og seinustu skipti sem ég hef sagt við hann hluti sem tengjast þessu þá hefur hann hótað að taka belti og aflífa sig úti í bílskúr , þannig hormónar og ótti fylltu mig og ég fer heim til mín þar sem màgur minn situr í sófanum og ég spyr hvar barns­faðir minn er hann neitar að svara,“ skrifar konan í færslunni og bætir við að hún hafi þá ákveðið að fara til tengda­föður síns þáverandi og athuga hvort barns­faðirinn væri þar. „Ég dingla þar og mætir tengda­faðir minn til dyra í náttslopp angandi af áfengi , hann spyr hvað ég vilji hér og ég segi ég vildi bara athuga hvort barns­faðir minn væri hér og hann stígur út og lokar hurðinni, hann byrjar strax að kalla mig druslu og hóru og að hann sé viss um að sonur hans eigi ekki barnið, ég segi honum að auðvita eigi sonur hans barnið og þar sem ég hafði ekki sofið hjá öðrum karlmanni í 12 ár eftir 10 ára samband við kvennmann á undan syni hans.“ Segist hún hafa sagt þáverandi tengda­föður sínum að sonur hans hafi farið með henni í sónar og vissi mætavel að hún væri ófrísk.

Árásin

Það er þá sem árásin gerðist að sögn konunnar: „Þá segir hann við mig er ekki best að enda þetta eitt fyrir allt fyrir alla og labbar hratt að mér og sparkar í magann á mér þannig ég dett aftur fyrir mig í stiganum. Þarna stend ég hratt upp og er full af ótta og byrja labba upp stigan upp að götu, hann grípur í hendina á mér þannig ég fæ mar á hendi eftir hendina hans sést greinilegt handarfar, ég er marin á maga, löpp og læri eftir fall, hann segir mig ljóta, feita og að engin geti elskað manneskju eins og mig …og að hann geti ekki beðið eftir að losna við mig úr lífinu hans og það sé sko ekkert andskotans barn, ég spyr hann hvað ég hafi gert honum og afhverju hann láti svona við mig hann hlær bara og tekur eftir upptökuna á símanum hlær og segir já taktu þetta bara upp, reynir að taka í símann en ég kemst í burtu með að labba útá götu þar sem bíll er og þá hætti hann að elta mig.“

Þegar heim var komið fékk hún óblíðar móttökur frá tengda­fjöl­skyldunni að hennar sögn. „Þegar ég kem aftur heim til mín þar situr fyrrum mágur minn í sófanum og fyrrum tengda­móðir mín í eldhúsinu, ég segi þeim hvað gerist, tengda­móðir mín hlær og labbar inni herbergi sitt og lokar og mágur minn segir áttir þú þetta ekki bara skilið …“

Á þessu augna­bliki segist konan hafa farið til móður systur sinnar því henni fór að blæða. Þegar hún mætir svo um morguninn upp á meðgöngu­deild sést „blóð­pollur hjá fylgju“ og henni sagt að það muni blæða þangað til pollurinn tæmist. Segir hún barns­föður sinn hafa hundsað skilaboð frá henni frá meðgöngu­deildinni og að hann hafi verið inni hjá föður sínum þegar hann réðist á hana en gerði ekkert til að stöðva það.

Þorir ekki að kæra

„Ég varð að lofa vakt­hafandi ljósmóður að ég færi ekki aftur heim í þessar aðstæður og lögreglunni, þannig sama dag var kallaður saman hópur af ættingum og vinum og var pakkað og ég flutt á 5 kltímum, allan þennan tíma sem ég var þarna þá yrti fyrrum tengda­móðir eða aðrir fjölskyldu­meðlimir ekki einu orði á mig.“

Að lokum segist konan vilja kæra en sé hrædd og þá aðallega óttast hún að tengda­faðir hennar fyrr­verandi muni einn daginn hitta barnið sem „reyndi að eyða“. Hún segir þó að búið sé að taka skýrslu um málið og að lögreglan sé með upptökur af árásinni.

„Þetta atvik er 1/100 sem ég þurfti að ganga í gegnum með fyrrum tengda­fjölskyldu mína.Ég hef ekki þorað að tjá mig vegna gaslýsingar sem ég hef fengið.Samt léttir að koma þessari skömm frá mér takk fyrir að lesa“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim