Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Fornleifar í Fagradal varpa nýju ljósi á landnám á Austurlandi

„Þetta er allt að minnsta kosti fyrir árið 1158, lík­lega á tíma­bil­inu 1000 til 1100“

Fornleifar
Forn­leifar Faðir Indriða, Skarp­héð­inn Þórisson heit­inn fann minjarnar 2011 Mynd: Indriði Skarphéðinsson

Forn­leifa­fræð­ingar rann­sök­uðu síð­asta sumar rústir í Fagradal á Brú­arör­æfum sem talið er að séu frá árunum 1000–1100. Bygg­ing­arnar benda til þess að ekki löngu eftir land­nám hafi fólk verið farið að setj­ast að og nýta land langt inni á hálend­inu.

„Þetta er allt að minnsta kosti fyrir árið 1158, lík­lega á tíma­bil­inu 1000 til 1100,“ segir Indriði Skarp­héð­ins­son forn­leifa­fræð­ingur, sem stýrði fyrstu form­legu rann­sóknum á svæð­inu í fyrra, í sam­tali við Aust­ur­frétt.

Í Fagradal fund­ust fjögur hús, þar af þrjú minni og eitt stærra sem lík­lega hefur verið skáli. Þar hefur fólk dvalið tíma­bundið eða lengur. Rúst­irnar fund­ust fyrst árið 2011 þegar Skarp­héð­inn Þórisson, faðir Indriða, sá þær úr lofti. Þær hafa síðan verið nefndar Skarp­héð­ins­tóftir.

Fuglar og landnýting

Fagri­dalur er hluti Brú­ar­dala, um 30 kíló­metra frá bænum Brú á Jökuldal. Þar eru einnig minjar um búsetu frá nýrri tíð, svo sem smala­byrgi frá um 1900. „Þetta er ótrú­lega merki­legt svæði út frá gróð­ur­fari, alls staðar í kring er urð og sandur en þarna er gróð­ur­vin,“ segir Indriði.

Eldri heim­ildir benda til að dal­ur­inn hafi áður verið enn grón­ari og jafn­vel nýttur til selja­bú­skapar.

Rann­sóknir á tóft­unum gefa vís­bend­ingar um hvernig landið var nýtt á land­náms­öld. Líklegt þykir að þær hafi verið byggðar til að tryggja rétt á svæð­inu, til dæmis vegna fugla­veiða, þar sem álftir og gæsir voru mik­il­væg fæða.

„En svo er líka talað um að landið sé full­setið 60 árum eftir land­nám, sem manni finnst ótrú­legt í dag, en það þýðir að það er full­nýtt,“ segir Indriði.

Heillegar rústir

Stærsta tóftin, skál­inn, er um 11 metra langur og fimm metra breiður. Hún er óvenju heil­leg. . „Hún stóð svo upp úr lands­lag­inu að við héldum að hún væri jafn­vel yngri en það kom annað í ljós þegar við fórum að grafa í þær,“ útskýrir Indriði.

Að hans mati geta frek­ari rann­sóknir varpað ljósi á þróun sam­fé­lags­ins á Aust­ur­landi eftir land­nám og hvernig fólk ferð­að­ist yfir hálendið og Vatna­jökul.

„Það eru þekktar leiðir, menn fóru í ver suður í Lóni. Brú­ar­jök­ull er stærsti skrið­jök­ull lands­ins en hafi hann verið innar, sem og Vatna­jök­ull, þá er mikið svæði frá Kverk­fjöllum að Snæfelli sem er greið­ara yfir­ferðar og hægt að nýta til beitar, hafi það verið gróið. Það er vitað að Möðru­dæl­ingar áttu við­ar­tekju í Skafta­felli og Skaft­fell­ingar hrossa­beit í Möðrudal. Þessar ferðir virð­ast mikið hafa lagst af á 15. öld eftir svarta­dauða og eld­gos,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp