Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Hrokinn kom mér á botninn“

Bjartur Guðmundsson býður upp á óvenju­lega árangurs­þjálfun.

Bjartur Guðmundsson er leikari, árangurs­þjálfi og eigandi fyrir­tækisins Optimized Performance sem hann stofnaði í febrúar 2016. Hann býður upp á óvenju­lega árangurs­þjálfun fyrir alla sem vilja öðlast hámarks­aðgengi að getu sinni og hæfi­leikum á hvaða sviði sem er. Bjartur byggir námskeiðin ekki síst út frá eign reynslu.

Bjartur Guð­munds­son er leik­ari, árang­urs­þjálfi og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Optimized Performance sem hann stofn­aði í febr­úar 2016. Hann býður upp á óvenju­lega árang­urs­þjálfun fyrir alla sem vilja öðl­ast hámarks­að­gengi að getu sinni og hæfi­leikum á hvaða sviði sem er.

„Ég trúi því að allur árangur, óháð í hverju, sé bundinn við þrjá þætti. Í fyrsta lagi þekkingu og kunnáttu, í öðru lagi viðhorfi okkar til okkar sjálfra og þess sem við viljum ná árangri í og í þriðja lagi venju­bundnu tilfinninga­legu ástandi.

Af þessum þremur atriðum vegur tilfinningalegt ástand þyngst, svo viðhorf og síðan þekking og kunnátta. Þar af leiðandi gengur Optimized Performance út á tilfinninga- og viðhorfs­þjálfun sem fer fram á hrikalega skemmtilegum og áhrifa­ríkum námkeiðum þar sem þátt­takendur læra að örva tauga­kerfið þannig að útkoman verði það sem ég kalla topp tilfinningalegt ástand,“ segir Bjartur.

„Í þessu öfluga ástandi galopnast aðgengi tauga­kerfisins að hæfi­leikum, upplýsingum og skapandi hugsun, við tökum uppbyggilegri ákvarðanir og fylgjum þeim eftir með vandaðri athöfnum, samskipta­hæfni fer upp á annað plan og kærleiks­ríkt sjálfs­traust fer í hæstu hæðir. Þetta er alveg geggjað hreint út sagt.“

Var hræddur við höfnun

Bjartur segist hafa misstigið sig ótal sinnum og upphaf þessa ævintýris megi rekja til þess að hann hélt að hann væri búinn að meika það sem leikari stuttu eftir að hann útskrifaðist frá Lista­háskóla Íslands árið 2009. „Fyrir vikið féll ég í þann fúla pitt að trúa því að nú myndu leik­stjórar og fram­leiðendur bjóða mér hlutverk í hrönnum. Með öðrum orðum þá varð ég hroka­fullur og taldi mér trú um að það væri fyrir neðan mína virðingu að sækjast af krafti eftir hlut­verkum en raun­verulega var ég bara skít­hræddur við höfnun og að standast ekki væntingar. Ég áorkaði þó einu og það var að verða grautfúll, reiður og bitur á mettíma en sem betur fer er ég frekar jákvæður einstaklingur að upplagi og fór að leita leiða til að komast á betri stað. Það er sagt að við þurfum annaðhvort örvæntingu eða innblástur til að taka nýja stefnu í lífinu og ég var svo sannarlega örvæntinga­fullur á þessum tíma­punkti. Innblásturinn kom svo þegar vinur minn benti mér á mannræktar­frömuðinn Anthony Robbins en ég er undir gríðar­legum áhrifum frá honum, hef marglesið allar bækur hans, farið í gegnum hljóð­prógrömm og setið námskeið. Síðan þá hef ég verið mikill áhuga­maður um mannrækt og jákvæða sálfræði sem svo varð til þess að ég stofnaði Optimized Performance,“ segir Bjartur.

„… Með öðrum orðum þá varð ég hroka­fullur og taldi mér trú um að það væri fyrir neðan mína virð­ingu að sækj­ast af krafti eftir hlut­verkum en raun­veru­lega var ég bara skít­hræddur við höfnun og að stand­ast ekki vænt­ingar.“

Til þessa hefur hann unnið með tæplega 80 vinnu­stöðum og rúmlega 3.000 einstaklingum og segir að viðbrögðin við námskeiðunum hafi verið ótrúlega góð. „Það er eitthvað við það að gefa af sér en markmiðið með þessu öllu er að miðla hugmynda­fræði og aðferðum sem geta stórbætt lífsgæði fólks. Námskeiðin eru fyrir alla sem hafa áhuga á því að taka skref fram á við og eru tilbúnir að axla ábyrgð á eigin gæfu.

Það hefur verið sagt að ef við viljum betra líf þá þurfum við sjálf að verða betri í lífinu. Með því að læra hvernig hægt er að innprenta uppbyggileg viðhorf og hvernig hægt er kynda upp öflugar uppbyggilegar tilfinningar sem veita kraft, hugrekki, trú og traust þá eru okkur bókstaf­lega allir vegir færir. Fyrir mér eru þetta lykil­atriði ef maður vill verða góður í lífinu og það magnaða er að þetta er ekki flókið og er meira að segja frekar létt ef maður skilur og kann aðferðirnar.“

Niðurrif engum til góðs

Bjartur lumar á ýmsum ráðum til fólks sem á það til að tala sig niður. „Já. Í fyrsta lagi verðum við að átta okkur á því að við gerum ekkert nema við trúum því að það muni hafa einhverjar jákvæðar afleiðingar í för með sér eða við trúum því að það forði okkur frá einhverjum neikvæðum afleiðingum. Það að tala okkur niður getur leitt til þess að annað fólk sýni okkur alúð og hlýju og þannig upplifum við ást og tengingu. Sumir trúa því að það sé bókstaf­lega mikilvægt að drulla yfir sjálfa sig til þess að læra af mistökum. Sjálfs­niðurrif getur verið leið okkar til að finnast við vera auðmjúk, ekki hrokafull eins og allir hroka­fullu fávitarnir og þannig upplifum við að við séum merkileg. Stundum notum við niðurrif til að búa til afsakanir, til að stjórna, til að forðast að gera eitthvað sem við óttumst en vitum að væri gott fyrir okkur. Við notum sjálfs­niðurrif líka til að gefa okkur leyfi til að gera eitthvað sem veitir skjót­fengna vellíðan en er raun­verulega ekki gott fyrir okkur né aðra.

Ég veit að þetta kann að hljóma fáránlega og það er fáránlegt að við notum sjálfs­niðurrif á þennan hátt en ef við gerum mikið af því, þá er það vegna þess að við höldum að það muni forða okkur frá meiri sársauka eða hreinlega veita okkur vellíðan.

Með því að læra hvernig hægt er að inn­prenta upp­byggi­leg við­horf og hvernig hægt er kynda upp öfl­ugar upp­byggi­legar til­finn­ingar sem veita kraft, hug­rekki, trú og traust þá eru okkur bók­staf­lega allir vegir færir, að sögn Bjarts. Mynd / www.pixabay.com

Til að venja okkur af þessum ósið þurfum við að komast að því hvaða sársauka við erum að reyna að forðast og/eða hvaða vellíðan við erum að sækjast eftir. Því næst þurfum við að átta okkur á því að sjálfs­niðurrif mun alltaf leiða til meiri sársauka en vellíðunar og taka ákvörðun um að það sé heimskulegt og ekki þess virði. Þetta gerum við með því að svara eftir­farandi spurningum: Hvaða sársauka mun það leiða af sér að rífa mig niður? Hvaða vellíðan mun það leiða af sér að hætta að rífa mig níður? Hvaða vellíðan mun ég upplifa ef ég tem mér að tala mig upp?

Hér er mikilvægt að koma með eins mörg svör og hægt er við hverri spurningu og svörin verða að kynda upp tilfinningar. Ef okkur tekst að gera þetta þá fer okkur virkilega að langa til að breyta hugsana­mynstri okkar sem þýðir að við erum opin fyrir næsta skrefi sem er að taka eftir því þegar við dettum inn í niðurrif og gera eftir­farandi um leið: Hoppa með hendur upp í loft og íhuga þessar spurningar í tvær mínútur: Hvað gæti ég verið þakklát/ur fyrir núna ef ég vildi virkilega vera þakklát/ur? Hvað gæti mér líkað vel við í eigin fari ef ég virkilega vildi? Hverju gæti ég verið stolt/ur af við sjálfa/n mig ef ég virkilega vildi? Líkams­beiting hefur stórkostleg áhrif á líðan okkar og það eitt að hoppa með hendur upp í loft í tvær mínútur kemur okkur í betra andlegt ástand þar sem er auðveldara að tala sig upp. Það sama gildir með spurningarnar en með því að einbeita okkur að þeim og svara í tvær mínútur getum við kynt upp sterkar uppbyggilegar tilfinningar. Með því að hoppa og svara spurningunum getum við keyrt okkur upp í frábært tilfinningalegt ástand á aðeins tveimur mínútum og tamið okkur uppbyggilegri viðhorf gagnvart sjálfum okkur. Ég hvet alla til að prófa þetta,“ segir Bjartur brosandi.

„Æfingin hér að ofan er frábær til að komast í gott tilfinningalegt ástand en almennt er það þrennt sem ber að hafa í huga. Að beita líkamanum og röddinni eins og þegar okkur líður vel, hugleiða uppbyggilegar spurningar og nota orðalag sem er uppbyggilegt.“

Og það er margt skemmtilegt fram undan hjá Bjarti. „Ég er á fullu að bóka námskeið með hinum ýmsu fyrir­tækjum fyrir veturinn en ég bendi áhuga­sömum á að senda mér bara tölvupóst á [email protected] eða fara á www.optimized.is og kynna sér málið betur. Svo er ég svo brattur að lofa því að ef þér líkar ekki námskeiðið þá færðu það endur­greitt að fullu,“ segir hann sposkur að lokum.

Texti / Ragnhildur Aðals­steins­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björnsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni