Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Að minnsta kosti 20 óbreyttir borgarar drepnir í loftárás nígeríska hersins

Að minnsta kosti 20 óbreyttir borg­arar lét­ust í loft­árás hers­ins í norð­vest­ur­hluta Nígeríu um helg­ina, sam­kvæmt þremur heima­mönnum sem ræddu við AFP í dag.

Að sögn íbúa voru með­limir í hópi sjálf­skip­aðra varð­liðs­manna (e. vigilantes), sem voru að elta glæpa­gengi í Zamfara-ríki, sprengdir í loft upp þegar her­flug­vél réðst á þá.

Níger­íski her­inn hefur ekki tjáð sig opin­ber­lega um málið.

Atvikið er það nýjasta í röð loft­árása í hern­að­ar­að­gerðum rík­is­ins sem hafa kostað hund­ruð almennra borg­ara lífið und­an­farin ár, á meðan Nígería berst við ýmsa vopn­aða hópa, allt frá íslömskum öfga­sam­tökum til glæpa­gengja sem kall­ast oft „bandítar“.

Íbúar sögðu glæpa­gengi hafa ráð­ist á þorpin Mani og Wabi í Maru-hér­aði, stolið naut­gripum og rænt tugum manns.

Þá brugð­ust íbúar í nálægum þorpum, þar á meðal Maraya, við og hófu eft­ir­för til að freista þess að bjarga gísl­unum og fá naut­grip­ina til baka. Her­flug­vél sem send var til aðstoðar, eftir að örygg­is­sveitir fengu til­kynn­ingu um atburð­inn, virð­ist hins vegar hafa rang­lega talið sjálf­boða­sveit­ina vera bandíta og varp­aði sprengjum á þá á svæð­inu milli Maraya og Wabi.

„Við lentum í tvö­földum harm­leik á laug­ar­dag. Bandítar tóku tugi íbúa og naut­gripi, og þeir sem eltu þá til að bjarga fólk­inu voru sprengdir af her­flug­vél. Tuttugu lét­ust,“ sagði íbú­inn Buhari Dangulbi.

Bandítar hafa um ára­bil lagt undir sig víð­feðm svæði í norð­vest­ur­hluta Nígeríu þar sem stjórn­völd hafa tak­mörkuð völd. Ólíkt íslömskum öfga­hópum í norð­aust­ur­hluta lands­ins eru hvatar bandíta fyrst og fremst efna­hags­legir.

Loft­árásir hers­ins gegn bæði bandítum og öfgasinnum hafa oft reynst ban­vænar fyrir sak­lausa borg­ara sem lenda á milli stríð­andi fylk­inga. Atvikið á laug­ar­dag var það þriðja af þessu tagi í Zamfara-ríki.

Mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International í Nígeríu hafa kallað eftir gagn­særri rann­sókn á mál­inu:

„Árásir bandíta kalla vissu­lega á við­brögð stjórn­valda, en að sprengja þorp ítrekað af handa­hófi er ólög­legt,“ sögðu sam­tökin í færslu á X (áður Twitter).

Annað vitni, Ishiye Kabiru, stað­festi að 20 hefðu lát­ist og lýsti því hvernig sjálf­boða­sveitir úr Maraya og nágranna­sveitum hefðu sam­ein­ast til að elta bandít­ana, en hefðu verið sprengdar af hernum.

Þriðji heim­ild­ar­mað­ur­inn, Alka Tanimu, stað­festi líka töl­una og bætti við: „Við þurfum enn að greiða fyrir að fá þá sem voru numdir á brott aftur, en naut­grip­unum er var­an­lega tapað.“

Hundruð látin í loftárásum í gegnum árin

  • Í jan­úar síð­ast­liðnum voru að minnsta kosti 16 manns drepnir þegar her­flug­vél sprengdi sjálf­boða­sveit í trú um að um glæpa­menn væri að ræða í Zurmi-hér­aði, Zamfara-ríki.
  • Í des­em­ber 2022 lét­ust yfir 100 óbreyttir borg­arar þegar her­flug­vél bombaði á Mutunji-þorp í Dansadau-hér­aði, Zamfara, þar sem hún elti bandíta.
  • Í des­em­ber 2023 voru 10 manns drepnir og sex særð­ust í loft­árásum á tvö þorp í Sokoto-ríki.
  • Í sama mán­uði sprengdi her­inn trú­ar­sam­komu í Tudun Biri-sam­fé­lag­inu í Kaduna-ríki og drap að minnsta kosti 85 manns, flest konur og börn.
  • Í jan­úar 2017 lét­ust að minnsta kosti 112 manns þegar her­flug­vél sprengdi flótta­manna­búðir með 40.000 íbúum í Rann við kamer­ún­ska landa­mærið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Innlent

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu