Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Erla Bolladóttir er Hetja ársins: „Finnst ofboðslega vænt um að það sé einhver að hugsa um þetta “

Erla Bolladóttir- ljósmyndari: Kazuma Takigawa
Erla Bolla­dóttir- ljós­mynd­ari: Kazuma Takigawa

Vali Mannlífs á Hetju ársins 2022 er lokið og úrslit liggja fyrir. Ljóst er að barátta Erlu Bolla­dóttur við kerfið og krabba­meinið hefur hreyft við fólki.

Er þetta í annað skiptið sem Mannlíf velur Hetju ársins en í fyrra var það Rúna Sif Rafns­dóttir sem hlotnaðist heiðurinn en hún bjargaði lífi hins átta mánaða Elds Elís með því að gefa honum hluta af lifur sinni sem var honum lífs­nauðsynlegt.

Sjá einnig: Rúna Sif Rafns­dóttir, hetja ársins: „Eldur Elí er mesta hetjan“

Áratuga­langri baráttu hennar við kerfið skilaði sér loksins rétt fyrir jól er Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra baðst afsökunar fyrir hönd ríkis­stjórnarinnar, á gæslu­varðhaldi sem hún sætti í tengslum við Geirfinns­máli- og þeirri meðferð sem hún hlaut í fangelsinu. Auk afsökunarbeiðnarinnar fékk hún greiddar 32 milljónir króna í miska­bætur.

Erla Bolla­dóttir –

Erla var í einlægu viðtali í tímariti og hlaðvarpi Mannlífs í byrjun október þar sem hún fór yfir áföllin og ástina, krabba­meinið og baráttuna við kerfið, á hispurs­lausan hátt. Hægt er að hlusta á viðtalið hér, hér og hér.

Þá sagði Erla á blaðamanna­fundi í haust að hún vonaði að máli hennar gegn ríkinu lyki áður en hún kveddi þennan heim.

Í samtali við Mannlíf sagðist Erla vera hrærð yfir heiðrinum: „Fyrsta tilfinningin sem vaknar er bara, það er eitthvað ofboðs­lega ljúft að finna það að einhver kannist við það sem ég hef verið að standa í. Mér þykir þetta mjög góður heiður og finnst ofboðs­lega vænt um að það sé einhver að hugsa um þetta.“

Aðspurð hvort hún hafi fundið fyrir meðbyr frá þjóðinni vegna baráttu hennar við ríkið játar hún því: „Já, seinni árin eða frá því árið 2011. Þegar Sævar dó, þá gerðist eitthvað með vitund þjóðarinnar. Þá fór ég að finna fyrir stuðningi,“ sagði Erla og átti þá við Sævar Ciesielski sem barðist fyrir endur­upptöku á Guðmundar og Geirfinns­málinu til dauðadags.

Er Erla var spurð hvort hún sé ekki hæstánægð með afsökunar­beiðni forsætis­ráðherrans og miska­bæturnar sagði Erla: „Jú, það var það sem ég lagði mestu áhersluna á og það sem skipti mig mestu máli, að það yrði kannast við hvað mér var gert.“

En Erla hefur unnið þennan bardaga en glímir nú við annars konar bardaga en hann er upp á líf og dauða, krabba­meinið. „Það gengur bara vel. Það er allt með kyrrum kjörum og það er enn ólæknanlegt segja þeir. En þetta er alveg með skásta móti.“

Erla Bolla­dóttir – Ljós­mynd­ari: Kazuma Takigawa

Að lokum spurði blaða­maður Mannlífs Erlu hvort hún væri bjartsýn á nýja árið:
„Ég get ekki alveg sagt það sko. Ég er ekki bjartsýn fyrir íslenskt samfélag. Mér finnst staðan ekki líta vel út. Þá á ég við varðandi afkomu fólks og húsnæðis­möguleika. Þetta virðist bara fara versnandi. Unga fólkið getur ekki keypt sér húsnæði og það virðist alveg vanta umhyggjuna fyrir fjöl­skyldunni, finnst mér. Það vantar það alveg hjá stjórn­völdum.“

Þar sem Erla er stödd í Svíþjóð um þessar mundir verður henni afhent viðurkenningar­skjal sem hetja ársins 2022, á næsta ári.

Mannlíf óskar Erlu innilega til hamingju með titilinn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna