Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Gylfi er ekki sáttur við Kynnisferðir – „Yfirgengilegt okur“

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

„Flugvallar­rúta – yfirgengilegt okur,“ segir Gylfi Páll Hersir inn á Facebook síðu sinni í gær.Þar rekur hann eftir­farandi og er mjög ósáttur.

Ég fór í fyrradag til útlanda og keypti rútumiða á BSÍ út á flugvöll, ferðin tekur 45 mínútur. Miðinn kostaði 4999 krónur, 25% dýrari en ef ég hefði keypt hann á netinu (3899 krónur). Lestar­miðinn frá Kastrup til Gauta­borgar kostaði 7.000 krónur (230 km, tók rétt rúma 3 tíma). Rútan frá flug­vellinum við Gautaborg (Landvetter) til borgarinnar kostar 1.500 krónur og tekur ferðin um 20 mínútur (20 km). Ég hef farið víða, það er hvergi eins dýrt að taka flugvallar­rútu og hér á landi. Kynnis­ferðir greiða hluthöfum mikinn arð. Þrátt fyrir feita covid styrki í okkar boði viðgengst þetta dæmafáa okur, græðgin á sér ekkert hóf.

Airport Direct bjóða einnig upp á ferðir milli Reykjavík Terminal í Skógar­hlíð til Leifs­stöðvar. Þeir innheimta ekki aukalega fyrir það ef fargjald er ekki keypt á netinu.

Til saman­burðar má geta þess að ef fjórir einstaklingar taka saman leigubíl frá Leifsstöð til höfuð­borgarinnar, greiða þeir fyrir það 19900 krónur. Það gera 5000 krónur fyrir manninn. Það er sama verð og Gylfi greiddi fyrir það að ferðast með rútu frá BSÍ og til Leifs­stöðvar.

Björn Ragnarson forstjóri félagsins sendi okkur eftir­farandi upplýsingar:

Það er hægt að velja í sjálf­salanum bæði Flybus+ sem er með akstri á hotel og líka án þeirrar þjónustu sem er á kr. 3.899, þar er einnig hægt að kaupa fram og til baka og þá er hvort ferð á kr. 3.599. Ástæða þess að við erum með báðar vörurnar í sjálf­salanum er að stundum náum við í fólk á hotel án þess að það sé búið að bóka fyrir að hafa verið sótt. Þessi viðskipta­vinur hefur greini­lega ekki tekið eftir hinum valkostinum.

Árið 2015 var greiddur arður til hluthafa og hefur það ekki verið gert síðan. Ársreikningar félagsins eru á rsk.is.

Fréttin hefur verið uppfærð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim