Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Sparkaði í dróna og hæfði fyrirsætu beint í andlitið

Er þekkt í þætt­inum undir nafn­inu La Colombiana

Isabella Rojas
Isabella Rojas Mynd: Facebook

Mexíkóskur sjón­varps­maður spark­aði dróna í and­lit konu í beinni útsend­ingu á dög­unum með þeim afleið­ingum að hún þurfti að yfir­gefa mynd­verið og leita lækn­is­að­stoðar.

Atvikið átti sér stað 26. októ­ber í skemmti­þætt­inum Es Show, sem sýndur er á Canal 6 í Monter­rey í Mexíkó.

Mynd­skeið af atvik­inu hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum. Þar sést þátta­stjórn­and­inn Ernesto Chavana standa í mynd­ver­inu þegar lít­ill dróni sveimar nærri honum. Chavana virð­ist pirr­ast á drón­anum og sparkar í hann.

Sparkið varð hins vegar til þess að drón­inn þeytt­ist upp í loftið og beint í and­lit kól­umbísku fyr­ir­sæt­unnar og dans­ar­ans Isabellu Rojas, sem er þekkt í þætt­inum undir nafn­inu La Colombiana.

Rojas beygði sig sam­stundis niður af sárs­auka og aðrir í mynd­ver­inu komu henni til aðstoðar. Hún þurfti í kjöl­farið að yfir­gefa útsend­ing­una tíma­bundið til að fá lækn­is­að­stoð.

Chavana sætti harðri gagn­rýni eftir atvikið, ekki síst fyrir við­brögð sín strax í kjöl­farið. Fjöl­margir á sam­fé­lags­miðlum gagn­rýndu hann fyrir að hafa ekki þegar í stað beðið Rojas afsök­unar eða komið henni til aðstoðar.

Hann baðst síðar opin­ber­lega afsök­unar og sagð­ist taka fulla ábyrgð á því sem gerð­ist.

Rojas sneri aftur í þátt­inn eftir að hafa fengið aðhlynn­ingu. Meiðsli hennar reynd­ust sam­kvæmt fjöl­miðlum minni­háttar. Hún sýndi síðar fylgj­endum sínum á sam­fé­lags­miðlum skurð á vör sem hún hlaut þegar drón­inn skall á and­liti hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Blaðamaðurinn Julia Raeside segir þekkta menn starfa áfram í skemmtanabransanum þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot.

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife