Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Reiði vegna hrópa Tourette-aðgerðarsinna á Bafta

„Nei, hann meinti þetta kjaftæði“.

Michael B. Jordan og Delroy Lindo
Michael B. Jordan og Delroy Lindo Þeir félagar kynntu verð­laun á Bafta í gær Mynd: PHILLIP FARAONE / GETTY IMAGES VIA AFP

Eft­ir­leikur atviks sem tengd­ist Tourette-heil­kennis-aðgerð­ar­sinn­anum John Davidson á BAFTA-verð­launa­há­tíð­inni í gær heldur áfram, eftir að fjöldi þekktra ein­stak­linga í kvik­mynda­iðn­að­inum lýsti yfir mik­illi óánægju með fram­kom­una og við­brögðin í kjöl­farið.

Davidson var við­staddur athöfn­ina þar sem kvik­myndin I Swear, sem er byggð á lífi hans og reynslu af for­dómum tengdum Tourette-heil­kenn­inu, var til­nefnd til nokk­urra verð­launa. Á meðan verð­launa­af­hend­ingin stóð yfir heyrð­ust ítrekað hróp frá honum úr salnum, þar á meðal niðr­andi orða­lag, n-orðið, á sama tíma og leik­ar­arnir Delroy Lindo og Michael B. Jordan voru á svið­inu við afhend­ingu fyrstu verð­launa kvölds­ins.

Við­brögðin létu ekki á sér standa. Jamie Foxx skrif­aði undir færslu um atvikið á sam­fé­lags­miðlum og sagði: „Óásætt­an­legt“ og bætti við: „Nei, hann meinti þetta kjaftæði“.

Blaða­konan Jemele Hill gagn­rýndi einnig málið harð­lega og skrif­aði: „Svart fólk á bara að sætta sig við að vera van­virt og afmennskað svo að öðrum líði ekki illa.“

Þá sagði leik­ar­inn Wendell Pierce: „Það er mjög pirr­andi að fyrsta við­bragðið hafi ekki verið skýrar og ein­læg­ari afsak­anir til Delroy Lindo og Michael B. Jordan. Móðgunin gagn­vart þeim er í for­gangi. Skýr­ingar á orða­lag­inu skipta ekki máli.“

Kynnir BAFTA-verð­laun­anna, Alan Cumming, greip tvisvar sinnum inn í athöfn­ina og útskýrði stöð­una fyrir áhorf­endum. Hann sagði meðal ann­ars: „Tourette-heil­kenni er fötlun, og kækirnir sem þið hafið heyrt í kvöld eru ósjálf­ráðir, sem þýðir að sá sem er með Tourette-heil­kenni hefur enga stjórn á orða­vali sínu. Við biðj­umst afsök­unar ef ein­hver móðg­að­ist í kvöld.“

Fram­leiðslu­hönn­uður mynd­ar­innar Sinners, Hannah Beachler, greindi frá því á sam­fé­lags­miðlum að henni hefði einnig verið beint að niðr­andi orða­lagi og gagn­rýndi hún það sem hún kall­aði yfir­borðs­kennda afsök­un­ar­beiðni. Hún skrif­aði: „Það sem gerði ástandið verra var afsök­unin í lokin, „ef ein­hver móðg­að­ist“.“

Að lokum gaf BBC út yfir­lýs­ingu þar sem beðist var afsök­unar á atvik­inu. Þar sagði meðal ann­ars: „Sumir áhorf­endur gætu hafa heyrt gróft og móðg­andi orða­lag á BAFTA-verð­laun­unum 2026. Þetta staf­aði af ósjálf­ráðum munn­legum kækum tengdum Tourette-heil­kenn­inu og var ekki vilj­andi. Við biðj­umst afsök­unar á þeim óþæg­indum sem þetta kann að hafa valdið.“

Tourette-heil­kenni er tauga­röskun sem ein­kenn­ist af ósjálf­ráðum hreyfi- og radd­kækjum. Um 10–20 pró­sent þeirra sem eru með sjúk­dóm­inn upp­lifa svo­kall­aða koprólalíu, þar sem ósjálfrátt blóts­yrði eða niðr­andi orð koma fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Innlent

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu