Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Eiríki ofbauð þessi ólöglega auglýsing í Reykjavík – Lét heildverslunina heyra það

Eiríkur Rögnvaldsson, fyrr­verandi prófessor í Íslensku við Háskóla Íslands, hefur undan­farið vakið athygli fyrir að tala gegn einstrengishætti hvað varðar íslenskt mál. Honum ofbauð þó auglýsingar sem sjá má á strætóskýlum víða í Reykjavík, líkt og mörgum.

Auglýsingin er fyrir einhverskonar hafra­mjólk en það sem verra er, hún er alfarið á ensku. Fjölmiðla­konurnar Karen Kjartans­dóttir og Björk Eiðs­dóttir vekja athygli á þessu á Facebook en þar skrifar sú fyrr­nefnda: „Eins og mjólk en gerð fyrir fólk. Hvaða fásinna er það að klastra öll strætó­skilti út með enska slag­orðinu sem er svo miklu slappara en íslenska þýðingin, sem hreinlega blasir við. Ég vil þakka Björk Eiðs­dóttur fyrir að vekja athygli á þessu og vona að þetta verði fært til betri vegar.“

Eiríkur deilir færslu hennar innan Facebook-hópsins Málspjall og skrifar: „Auglýsingar eiga að vera á íslensku! Það er ástæðu­laust og raunar bannað með lögum að birta auglýsingar á ensku þegar mark­hópurinn er augljós­lega íslenskur að mestum hluta. Björk Eiðs­dóttir vakti athygli á þessu og samdi frábært íslenskt slagorð í staðinn fyrir enskuna.“

Ólíkt mörgum þá lét Eiríkur ekki duga að kvarta á Facebook, hann fór í málið. „Ég skrifaði heild­versluninni: „Góðan dag. Athygli mín hefur verið vakin á auglýsingu frá ykkur sem nú má víða sjá á strætóskýlum. Á henni er textinn „It’s like milk but made for humans“. Af því tilefni vil ég vekja athygli á að í 6. grein laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskipta­háttum og markaðs­setningu, segir: „Auglýsingar sem höfða eiga til íslenskra neytenda skulu vera á íslensku.“ Ég vænti þess að auglýsingunum verði breytt þannig að þær samræmist íslenskum lögum.“

Honum hafði ekki borist svar nú í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kröfuhafar fengu ekkert greitt úr fjórum búum þar sem lýstar kröfur námu samtals rúmum 34,2 milljónum króna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta