Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ófremdarástand í Sælukoti og starfsmenn endast aðeins nokkra mánuði: „Búið að vera svona í mörg ár“

Leikskólinn Sælukot
Leik­skól­inn Sælukot Mynd: Róbert Reynisson

„Starfs­menn endast oftast þarna í nokkra mánuði og þetta er búið að vera svona í mörg ár,“ sagði fyrrum starfs­maður leik­skólans Sælukots í viðtali við Mannlíf.

Mannlíf ræddi við fyrr­verandi starfs­mann leik­skólans, sá starfs­maður hefur óskað nafn­leyndar í tengslum við málið.
Móðir barns sem var við leik­skólann hafði sagt frá reynslu sinni af leik­skólanum eftir að grunur kom upp um að starfs­maður leik­skólans hefði brotið á barni hennar.
Þá taldi móðirin leik­skólann hafa brugðist en voru trúnaðar­skýrslur barna­verndar sýndar á fundi við foreldraráð.

Mannlíf greindi frá því í gær að starfs­maðurinn hafi sagt starfi sínu við Sælukot lausu og hafi í kjölfarið herjað á borgina í von um að leik­skólinn yrði skoðaður.

Starfs­maðurinn segir þá í viðtalinu að hann og fleiri fyrrum starfs­menn leik­skólans hafi rætt saman og borið saman bækur sínar. Þá telur starfs­maðurinn leik­skólann ekki hafa uppfylla nægilegar kröfur til þess að halda starfseminni gangandi, en meðal annars hafi verið allt of mörg börn á hvern starfs­mann.

Þá efast starfs­maðurinn um örvun málþroska barna við leik­skólann en er hann gríðar­lega mikil­vægur þáttur.

„Hver er tungumála­krafa borgarinnar varðandi leikskóla, rekstrar­aðili talar ekki íslensku og enska er ekki heldur hennar móðurmál og öll samskipti eru mjög flókin‘‘.

Í samtali við Mannlíf staðfesti rekstrar­aðili og skóla­stjóri það að fjöldi starfs­fólks tali ekki íslensku.

Þá velti fyrr­verandi starfs­maðurinn því fyrir sér hvort Reykja­víkurborg sé meðvituð um ástand lóðarinnar.
„Er borgin meðvituð um ástand lóðar leik­skólans? Það er bara möl og drulla þarna núna‘‘.

Starfs­maðurinn segist hafa rætt við Kennara­samband Íslands um starfsmanna­veltu leik­skólans en segir hún starfs­menn yfirleitt endast við leik­skólann í nokkra mánuði. Þannig hafi það verið árum saman.

„Er borgin og stéttar­félögin, meðvituð um starfsmanna­veltu leik­skólans? Starfs­menn endast oftast þarna í nokkra mánuði og þetta er búið að vera svona í mörg ár, ég er búinn að komast að því,“ sagði starfs­maðurinn.

Telur hann nokkuð ljóst að margt þurfi að skoða. Þá taki aðrir fyrrum starfs­menn undir gagn­rýnina.
Starfs­maðurinn hefur ekki bara áhyggjur af starfi leik­skólans heldur einnig aðstöðu og fjár­veitingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum