Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Einstaklingar yngri en 65 ára með alzheimer: „Hræðileg staðreynd“

Mynd/skjáskot. Alzheimersamtökin
Mynd/skjá­skot. Alzheimersamtökin Mynd: Hanna Andrésdóttir

„Allar þjóðir heims bíða í ofvæni eftir lyfjum við þessum vágesti og mörg stærstu lyfja­fyrirtækin verja gífur­legum fjármunum í leitina sem mun skila árangri að lokum, við vitum bara ekki hvenær. Á meðan verðum við að standa okkur vel í að aðstoða bæði þann veika sem og aðstand­endur,“ segir Vilborg Gunnars­dóttir, framkvæmda­stjóri Alzheimarsamtakanna í samtali við blaðamann Lifðu núna. Hún segir að nú sé ekki lengur talað um heila­bilun sem öldrunar­sjúkdóm heldur tauga­sjúkdóm og eins er með fleiri sjúkdóma eins og parkinson. Samtökin eru staðsett í St, Jóseps­spítalanum í Hafnar­firði og kallast Seiglan.

5-6000 Íslendingar með heilabilun

„Alzheimar, parkinson, levy body og fleiri sjúkdómar eru í raun tauga­sjúkdómar því þeir koma ekki bara með öldrun. Hér hjá okkur í Seiglunni er yngsti sjúklingurinn til dæmis fimmtugur. Við finnum á aðstand­endum þessara sjúklinga hvað þetta tekur mikið á og að þörfin fyrir að stoð er knýjandi í öllum tilfellum. Við vorum himinsæl að geta farið að bjóða upp á þessa þjónustu hér. Við höfum langa reynslu af því að vinna með fólk með heila­bilun í sérhæfðu dagþjálfuninni. Þangað fer fólk sem býr enn þá heima en getur ekki verið eitt heima. Og í dag greinast árlega 20 einstaklingar yngri en 65 ára með alzheimer.“

Heilahristingur oftar en tvisvar eykur hættu á heilabilun

Ekki er ennþá vitað hvað veldur heila­bilun. Rann­sóknir hafa þó t.d. sýnt dæmi um að fái fólk heila­hristing oftar en tvisvar á ævinni auki það hættuna á heila­bilun síðar á ævinni.

„Vísinda­menn sáu fylgni hjá karl­mönnum sem höfðu stundað snertiíþróttir eins boxíþróttina og fótbolta þar sem bolti er skallaður. Í fram­haldinu kom í ljós að konur sem höfðu orðið fyrir heimilis­ofbeldi voru oft líklegri til að fá heila­bilunar­sjúkdóm, líklega vegna ítrekaðra höfuð­högga. Þetta er hræðileg staðreynd sem er ekki hægt að horfa fram hjá.“

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hjá Lifðu núna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum