Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Mikilvægt að gleyma tímanum og símanum

Ingibjörg Ýr Óskars­dóttir starfar sem ljósmóðir en segir áhugann á starfinu hafa kviknað í sveita­heimsókn þegar hún sá afkvæmi í fyrsta skipti koma í heiminn.

Ingibjörg Halldórsdóttir
Ingi­björg Hall­dórs­dóttir

„Ég var í heimsókn í sveit hjá langömmu­systur minni þegar ég sá lamb fæðast. Frænka mín aðstoðaði kindina við að koma lambinu í heiminn og mér fannst þetta magnað.”

„Þetta var mín fyrsta upp­lifun af því að sjá afkvæmi fæð­ast og ég er viss um að það kvikn­aði á ein­hverjum ljós­móð­ur­frumum inni í mér við sauð­burð­inn.”

„Ég var samt ekki ákveðin í að verða ljósmóðir fyrr en ég var á þriðja árinu mínu í hjúkrun. Þá var ég í verknámi á fæðingar­deild fjórðungssjúkrahúsins á Akureyri og ljós­mæðurnar þar leyfðu mér að fylgjast með fæðingu. Eftir að ég gekk út af spítalanum eftir að hafa séð þessa fyrstu fæðingu þá vissi ég að það væri ekki aftur snúið, ég vissi hvað ég vildi verða, ég ætlaði að verða ljósmóðir.”

Ingibjörg segir ljósmóður­starfið ákaflega fjöl­breytt. „Margir halda að ljósmæður séu eingöngu í því að taka á móti börnum en raunin er sú að þær sinna líka konum og fjöl­skyldum á meðgöngu, í sængur­legu og ungbarna­vernd. Ljósmæður sinna einnig allskyns fræðslu og forvarnar­starfi sem kemur að heilsu kvenna, barna og fjöl­skyldunnar í heild.

Órjúfanleg tengsl verða til á fyrstu mínútunum eftir að barn fæðist og mikilvægt er að aðskilja ekki foreldra og barn nema þörf þykir. Ingibjörg segir mikilvægt að foreldrarnir gleymi tímanum og símanum og njóti þess að skoða og kynnast barninu sínu fyrstu klukku­stundirnar og njóti stundarinnar.

„Þetta er mögnuð stund sem kemur ekki aftur.”

Það er gott er að minna sig á að hver og ein fæðing er einstök og upplifun kvenna af fæðingu er líka mismun­andi. Að koma barni í heiminn er erfitt en erfitt á jákvæðan hátt og erfið­leikarnir breytast yfirleitt í þína stærstu og fallegustu stund sem þú munt muna um ókomna tíð, augna­blikið sem þú varðst mamma.”

Viðtalið í heild má lesa í nýjustu Vikunni.

Mynd / Hákon Davíð Björnsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni