Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann

Fjölmiðla­maðurinn opnar sig um fordóma sína gegn sixpensurum

Illugi Jökulsson
Illugi Jök­uls­son Illuga er illa við six­pens­ara

Illugi Jökulsson segist í Facebook-færslu í gaman­sömum tón, hafa frá barnæsku haft óbeit á sixpensurum og talið þá sem ganga með slíka hatta bæði vitlausari og leiðinlegri en aðra menn. Hann brá þó út af vananum eftir óvæntan fund við unga fjöl­skyldu fyrir utan Krónuna.

Illugi Jökulsson, fjölmiðla­maður og rithöfundur, segir í Facebook-færslu að hann hafi aldrei þolað sixpensara og hafi frá því hann var strákur verið sann­færður um að karlmenn sem ganga með slíka hatta séu „yfirleitt bæði vitlausari og leiðinlegri en aðrir menn“.

Hann segist ekki hafa minnstu hugmynd um hvernig þessi skoðun hafi fest rætur í huga hans. Karlarnir í sveitinni sem gengu gjarnan með sixpensara hafi nefnilega „sannarlega flestallir [verið] ágætis kallar“ og enginn þeirra hafi gert honum neitt svo hann muni.

„En ekkert fékk haggað þessari skoðun minni,“ skrifar Illugi og bætir við að fordómarnir hafi jafnvel haft áhrif á samband hans við Hrafn bróður sinn heitinn þegar sá síðarnefndi tók upp á því að ganga með sixpensara.

Ljótur sixpensari fyrir utan Krónuna

Þegar Illugi kom út úr Krónunni á dögunum rakst ungur maður með sixpensara næstum því utan í hann. Viðbrögð Illuga voru samkvæmt eigin lýsingu fyrir­sjáanleg.

„Þá bjó ég mig strax undir að hafa á honum mestu fyrirlitningu,“ skrifar hann.

Ekki bætti úr skák að höfuðfat mannsins var að hans mati sérlega ljótt.

„Hann var með ljótustu sort af sixpensara á höfðinu, stór­köflóttan og með uppbrettu deri, alveg ólýsanlega ljótt höfuðfat, það segi ég satt.“

Illugi viðurkennir að hafa hugsað með sér: „Hæfði þessum bjána vel.“

En þá tók sagan óvænta stefnu. Illugi áttaði sig á því að ástæðan fyrir því að maðurinn hafði næstum rekist utan í hann var sú að hann var að taka í hönd sjö ára sonar síns. Drengurinn hélt jafnframt í hönd móður sinnar.

„Drengurinn skríkti yfir einhverju sem pabbi hans sagði og mamman brosti til mín,“ segir Illugi.

Fjöl­skyldan gekk síðan syngjandi burt og breytti þar með viðhorfi Illuga til unga mannsins, að minnsta kosti að þessu sinni.

„Ég ákvað að fyrirgefa unga manninum sixpensarann,“ skrifar Illugi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni