Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Stöðvunum verður meðal annars skylt að halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir

Leigubílar í miðborginni
Leigu­bílar í mið­borg­inni Mynd: BHJ

Eyjólfur Ármannsson innviða­ráðherra hefur gert umfangs­miklar breytingar á reglugerð um leigu­bifreiða­þjónustu sem miða að því að efla eftirlit með starfseminni og tryggja neytendum öruggari og skilvirkari þjónustu.

Flestar breytingarnar hafa þegar tekið gildi en ákvæði um sérstök skráningar­merki leigu­bifreiða tekur gildi 1. apríl 2027.

Með breytingunum eru auknar skyldur lagðar á Samgöngu­stofu, leyfis­hafa og leigu­bifreiða­stöðvar. Samgöngu­stofu verður meðal annars gert að framkvæma árlegt eftirlit með leyfis­höfum og koma á sérstöku áhættu­matskerfi. Frekara eftirlit verður síðan byggt á niður­stöðum þess mats.

Samgöngu­stofa skal jafnframt gera árlega skýrslu um framkvæmd eftirlits og hafa reglu­bundið eftirlit með viðurkenndum námskeiðs­höldurum. Þá er kveðið á um að próftaka vegna leigu­bifreiða­aksturs skuli fara fram án utan­aðkomandi aðstoðar.

Nýjar kröfur eru einnig gerðar til leigu­bifreiða­stöðva. Þeim ber að setja sér hátternis­reglur og birta þær auk þess að halda rafræna atvika­skrá þar sem skráð verða frávik í starfsemi, brot á lögum og kvartanir neytenda.

Stöðvunum verður einnig skylt að halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir. Upplýsingar úr skránni skulu vera eftirlits­aðilum aðgengilegar í rauntíma í gegnum örugga vefgátt.

Kröfur um upplýsinga­gjöf til farþega verða jafnframt hertar. Ítarlegri ákvæði gilda nú um fram­setningu verðskrár og sýnileika leyfis­skírteina í leigu­bifreiðum.

Leyfis­höfum verður auk þess skylt að tilkynna Samgöngu­stofu um úrskurði eftirlits­aðila, svo sem Neytenda­stofu, vegna lögbrota. Slík brot geta jafnframt verið metin sem brot gegn góðum viðskipta­háttum og leitt til sviptingar leyfis.

Ein sýnilegasta breytingin tekur þó ekki gildi fyrr en 1. apríl 2027. Frá þeim tíma verða leigu­bifreiðar auðkenndar með sérstökum lituðum skráningar­merkjum. Sérstök reglugerð verður sett um útfærslu þeirra.

Miklar deilur og ósætti

Breytingar innviða­ráðherra á reglugerð um leigu­bifreiða­þjónustu eru nýjasti kaflinn í breytingum á umgjörð leigu­bílaaksturs hér á landi. Málefni greinarinnar hafa áður valdið miklum deilum, meðal annars árið 2022 þegar leigu­bílstjórar mótmæltu fyrir­hugaðri breytingu á lögum.

Þá lögðu leigu­bílstjórar undir sig Tjarnar­götu og flautuðu fyrir utan ráðherra­bústaðinn á meðan ríkis­stjórnar­fundur stóð yfir. Tilefnið var frumvarp sem átti meðal annars að heimila einstaklingum og rekstrar­aðilum að reka leigubíla án þess að vera bundnir við leigu­bílastöð eða hafa aksturinn að aðal­atvinnu.

Bílstjórar töldu breytingarnar ógna bæði starfs­öryggi þeirra og öryggi almennings og kröfðust þess að stjórn­völd hlustuðu betur á sjónarmið greinarinnar.

Nú, fjórum árum síðar, hefur Eyjólfur hert reglu­verkið á ýmsum sviðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda