Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Tollurinn rukkaði Skagfirðinga um tugmilljónir – Titringur vegna tollfrjáls kjúklings frá Úkraínu

Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri KS greip í taumana. Myndin er samsett
Þórólfur Gíslason kaup­fé­lags­stjóri KS greip í taumana. Myndin er sam­sett

Kjúklingur sem Esja gæðafæði flutti inn frá Litháen en var að sögn með uppruna í Úkraínu varð til þess að fyrir­tækið varð að greiða tugmilljónir í tolla og álögur. Eins og Mannlíf greindi frá í gær flutti Esja, sem er í eigu Kaup­félags Skagfirðinga, inn 40 tonn af kjúklingi frá Litháen með uppruna í Úkraínu í haust. Kjöt­markaðurinn ehf. sem einnig er með tengsl við Kaupfélag Skagfirðinga flutti inn mun minna magn á síðasta ári og í byrjun þessa árs. Guðmundur Gíslason framkvæmda­stjóri fullyrðir að Ktmarkaðurinn hafi flutt inn kjöt með uppruna í Litháen. Kjöt Esju fór inn í landið án þess að áhættumat lægi fyrir eins og skilt er þegar flutt er inn ný vara eins og gerðist í þessu tilviki. Ágúst Andrésson, yfirmaður kjöt­vinnslu Kaup­félags Skagfirðinga og heiðurs­konsúll Rússa, sagði við Bænda­blaðið  að greiddur hefði verið tollur af kjúklingunum og fyrir­tækið myndi ekki krefjast endur­greiðslu á þeim grunni að vörur frá Úkraínu beri ekki tolla. Þarna er aðeins hálf sagan sögð því fyrir­tækinu var gert að borga.

Heimildir Mannlífs herma að fyrir­tækinu hafi verið gert að greiða bæði toll og álag vegna þess að kjúklingurinn kom til Íslands frá Litháen en ekki uppruna­landinu. Guðbjörn Guðbjörnsson, yfir­tollvörður hjá Toll­stjóra, vitnaði til þess á námskeiði sem haldið var um tollamál og lýsti því hvernig álögur komu til.

Kaupfélagið sagði stopp

Innflutningurinn olli miklum titringi þar sem íslenskir kjúklinga­bændur töldi óeðlilegt að fyrirtæki í þeirra eigu væri að grafa undan innlendri fram­leiðslu með því að dæla inn á markaðinn ódýrum kjúkling. Stjórn Kaup­félags Skagfirðinga, með Þórólf Gíslason kaup­félags­stjóra í öndvegi, ákvað að toll­fríðindin yrðu ekki sótt og fyrir­tækin greiddu möglunarlaust háan toll á hvert kíló auk álagsins. Fyrir liggur að kostnaðurinn við innflutninginn er því himinhár.

Það felur í sér brot á reglugerð að umrædd tæplega 80 tonn af kjúklingi komust inn á íslenskan markað og í sölu án þess að áhættumat færi fram. Samkvæmt heimildum Mannlífs var kjúklingurinn seldur í verslunum Nettó og til veitinga­húsa án þess að uppruna­lands væri getið eða áhættumat færi fram. Heimildar­menn Mannlífs telja að stofnuninni hefði með réttu borið að innkalla vöruna. „Málið er í meðhöndlun hjá stofnuninni,“ segir Silja Unnars­dóttir hjá Mast í samtali við Mannlíf.

Uppfært. „Kjöt­markaðurinn flutti ekki inn kjúkling á síðasta ári frá Úkraínu heldur fimm tonn frá Litháen. Kjöt­markaðurinn hefur flutt inn á þessu ári 18 tonn af kjúkling frá Úkraínu og er með öll leyfi fyrir því. Kjúklingurinn frá Úkraínu er gæðavara alinn á maís og slátrað í slátur­húsi sem er með BCR vottun,“ skrifar Guðmundur. Hann segir fyrirtæki sitt hafa greitt 18 prósent toll og 540 kr./kg samtals yfir 640 kr./kg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim